Fjárfestingartækifæri! Mikil uppbygging er fyrirhuguð á svæðinu næstu misseri, og má þar nefna Hvammsvirkjun, Vindmillugarð (Vaðölduver), Brú yfir Þjórsá til móts við Árnes sem og bygging glæsilegs hótels og baðlóns. Eignirnar eru frábærlega skipulagðar og falla þær vel að reglum HMS um hlutdeildarlán.
Valhöll fasteignasala kynnir: Nýtt fimm íbúða raðhús í byggingu í grónu íbúðahverfi, beint á móti grunnskólanum í Árnesi. Húsið er viðhaldlétt og klætt að utan. Vandaðir ál/tré gluggar frá IEAL COMBI. Íbúðirnar seljast fokheldar, á byggingastigi 2 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Frábært skipulag á er eignunum sem eru þriggja og fjögurra herbergja.
Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931 eða oskar@valholl.is
Nánari lýsing:
Skólabraut 5A - 90,8 fm Fokhelt verð 31,9m - Fullbúið 48,9m (Endaraðhús fjögurra herbergja)
Skólabraut 5B - 77,6 fm Fokhelt verð 26,9m - Fullbúið 42,9m (þriggja herbergja)
Skólabraut 5C - 77,4 fm Fokhelt verð 26,9m - Fullbúið 42,9m (þriggja herbergja)
Skólabraut 5D - 77,5 fm Fokhelt verð 26,9m - Fullbúið 42,9m (þriggja herbergja)
Skólabraut 5E - 90,6 fm Fokhelt verð 31,9m - Fullbúið 48,9m (Endaraðhús fjögurra herbergja)
Teikningar hússins gera ráð fyrir þrem svefnherbergjum (A og E) annars tvö (B,C,D) andyri, stofu- borðstofu og eldhúsi í opnu rými, baðherbergi og þvottahúsi.
Húsið er klætt að utan með lituðu báruáli (RAL 7006/9005) og járn er á þaki (RAL 9005). Gluggar eru vandaðir, ál/tré gluggar. Hitalagnir eru steyptar í gólfplötu og húsið því kynnt með svæðaskiptum gólfhita. Húsið er selt fullbúið að utan og fokhelt að innan skráð á byggingastig 2. samkv IST 51:2021. Lóð er þökulögð og drenmöl í bílaplani ásamt steyptum ruslatunnuskýlum. Gert er ráð fyrir heitum potti í garði og ídráttarrör fyrir lagnir til staðar.
Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931 eða oskar@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3.800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.