Atvinnueign kynnir til SÖLU eða LEIGU: Um 607 fm verslunar- eða skrifstofurými á jarðhæð í Hlíðasmára 19. Rýmið hefur mikið auglýsingagildi og er mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.Rýmið er 570 fm en hlutdeild í sameign um 37 fm. Mögulegt er að leigja einnig 193 fm í kjallara í rými beint fyrir neðan.
Um er að ræða stórt og rúmgott rými með sérinngangi sem skiptist í opið vinnurými, 5-6 skrifstofur/fundarherbergi. skjalageymslu og salerni. Steinteppi er á gólfi og nýleg lýsing í lofti. Í kjallara er fullbúið eldhús með matsal fyrir um 30-40 manns. Þrjár snyrtingar og búningsklefi með sturtuaðstöðu. Góð geymsluaðstaða eða lager er til staðar. Dúkur er á gólfi. Hægt er að komast í kjallara í gegnum ramp sem liggur meðfram húsinu.
Glerveggir eru á jarðhæð og því er hægt að skipta jarðhæðinni í 2-3 minni einingar og samnýta eldhúsaðstöðu í kjallara.
VSK leggst EKKI við leiguverð. Laust strax. Allar nánari upplýsingar veita:
Ólafur Ingi Guðmundsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari, í síma
847-7700 eða
olafur@atvinnueign.is Halldór Már Sverrisson, viðskiptafræðingur, lögg. fasteignasali og leigumiðlari. í síma
898 5599 eða
halldor@atvinnueign.isÁ vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf,
www.atvinnueign.is - Atvinnueignir eru okkar fag -