Fasteignaleitin
Skráð 30. júní 2026

Þrastanes 13

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
277.8 m2
6 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
199.800.000 kr.
Fermetraverð
719.222 kr./m2
Brunabótamat
132.250.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
20725931
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala kynnir: Einbýlishús á þremur pöllum með yfirbyggðri sundlaug og innbyggðum tvöföldum bílskúr á stórri hornlóð (eignarlóð) að Þrastanesi 13 í Garðabæ með útsýni til sjávar og fjalla.

Einbýlishúsið er skráð 277,8 m² (þar af er innbyggður tvöfaldur bílskúr skráður 57,1 m²). Lóðin er 1.220,0m². Húsið er teiknað af arkitektunum Ferdinand Alfreðssyni og Guðmundi Kr. Kristinssyni. þessi fasteign  einkennist af skemmtilegu skipulagi á pöllum, mikilli lofthæð, glæsilegu flæði milli rýma og góðri  tengingu við stóra og gróna lóð þar sem stendur um 70 m² garðskáli og sundlaugarhús sem ekki er í skráðum fermetrum eignarinnar.

Nánari lýsing:
Skipulag palla hússins: 
Neðsti pallur (Inngangur,  þjónusturými og bílskúr): Komið er inn í rúmgóða forstofu með dökkum náttúruflísum á gólfi og innbyggðu fatahengi. Inn af forstofu er stórt  forstofuherbergi sem nýtist vel sem geymsla en mætti breyta í vinnuherbergi, svefnherbergi eða gestaherbergi. Frá forstofu tekur við flísalagt hol skreytt  trélistaverki. Á þessum palli er einnig snyrtilegt gestasalerni með glugga og stórt þvottaherbergi með dúk á gólfi, góðum skápum og útgengi út á lóð. Innangengt er í tvöfaldan, heitan bílskúr beint af neðsta palli.
Miðpallur (Stofa og útgengi á suðurverönd): Frá holi er gengið upp fallegan stiga á miðpall hússins þar sem tekur við stór og björt stofa með mikilli lofthæð með parketi á gólfi. Útsýni er úr stofu til suðurs og þaðan er gengið út á stóra og skjólsæla viðarverönd og út í suðurgarðinn.
Efsti pallur (Eldhús, borðstofa og svefnálma): Úr stofunni er gengið upp á efsta pallinn. Þar er parketlögð borðstofa sem flæðir skemmtilega úr stofurýminu. Eldhúsið er rúmgott með ljósri innréttingu, flísum á milli skápa og korkflísum á gólfi. Við borðkrók í eldhúsi er dásamlegt útsýni niður að sjó. Í svefnálmu á þessum palli er opið og parketlagt sjónvarpshol sem auðveldlega mætti stúka af sem  svefnherbergi. Hjónaherbergið er afar rúmgott með innbyggðum fataskápum sem mynda eigið "walk in" fataherbergi. Innangengt er úrhjónaherbergi yfir í baðherbergi þar sem er bæði baðkar og sturtuklefi. Við enda svefnherbergisgangsins er rúmgott svefnherbergi með fataskáp. Efsti palllurinn býður upp á talsverða möguleika til breytinga.
Sundlaugarhús og garðskáli: Í bakgarðinum er sundlaugarhús/garðskáli. Þarna er að finna einstaka aðstöðu til samveru fjölskyldu og vina með skjólgóðr verönd, fallegum gróðri og miklum möguleikum til áframhaldandi uppbyggingar. Hluti garðskálans er hellulagður og þar eru vínberjatré. Við hlið garðskálans er einnig áhaldaskúr fyrir garðverkfæri.
Bílskúr: Afar rúmgóður tvöfaldur innbyggður bílskúr með lökkuðu gólfi. Heitt og kalt vatn. 
Lóð og umhverfi: Húsið stendur á stórri, gróinni og fallegri 1.220 fm hornlóð með útsýni til sjávar og fjalla.  Heimkeyrslan er hellulögð og rúmar tvær til þrjár bifreiðar án vandkvæða.

Þrastanes 13 er einstakt fjölskylduhús á frábærum stað þar sem arkitektúr, staðsetning, útsýni og framtíðarmöguleikar mynda heild sem erfitt er að finna annars staðar.

Allar upplýsingar veita  Börkur Hrafnsson lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 892-4944. tölvupóstur borkur@fastborg.is og Ingimar Ingimarsson lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 8618458, tölvupóstur ingimar@fastborg.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er því skorað á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (52)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Baughús 41
Opið hús:06. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Baughús 41
Baughús 41
112 Reykjavík
232.4 m2
Einbýlishús
724
774 þ.kr./m2
179.800.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 24
Urriðaholtsstræti 24
210 Garðabær
90.2 m2
Fjölbýlishús
32
886 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Reykjadalur 3A
Skoða eignina Reykjadalur 3A
Reykjadalur 3A
271 Mosfellsbær
454.6 m2
Einbýlishús
1148
627 þ.kr./m2
285.000.000 kr.
Skoða eignina Mosagata 11
Bílastæði
Skoða eignina Mosagata 11
Mosagata 11
210 Garðabær
108 m2
Fjölbýlishús
4
879 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin