Grýta í Grýtubakkahreppi Skemmtilegt eign á eignarlóð í Grýtubakkhreppi. Eignin er í dag skráð sem geymsluhúsnæði en skipist þannig að um 70 m² er góð 3ja herbergja íbúð með góðri steyptri verönd og heitum potti, um 150 m² verkstæði/bílskúr - upphitað og einangrað rými og rúmgóð geymsla sem telur um 320 m². Lóðin er 4.606 m² að stærð. Eignin er staðsett í skemmtilegu umhverfi, gott útsýni er frá húsinu og stutt er til Grenivíkur og í vetrarparadísina Kaldbak.
Íbúðin var útbúin árin 2017 - 2018 og þá var byggt við húsið til vesturs. Forstofa er með flísum á gólfi og þar er jafnframt þvottahúsinnrétting og gott skápapláss. Stofa og eldhús eru í einu opnu rými þar er harðparket á gólfi og ljós snyrtileg innrétting. Kamína er í stofunni og útgangur á rúmgóða verönd til suðurs með heitum potti. Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi. Baðherbergi er flísalagt og þar er ljós innrétting og sturta. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu og handklæðaofn.
Verkstæði/bílskúr. Þessi hluti hússins og einangraður og upphitaður með gólfhita og fóru þær framkvæmdir fram árið 2012. Rafdrifinn innkeyrsluhurð er á suðurhlið hússins en einnig er innkeyrshurð úr þessum hluta yfir í geymslurýmið. Ágætar innréttingar eru á verkstæðinu sem og lýsing. Salerni og geymsla eru í sér rýmum út frá verkstæði, en einnig er innangengt yfir í forstofu íbúðar.
Geymslan er að stærstum hluta óeinangruð en þó eru í henni þrjár upphitaðar geymslur og tæknirými stúkaðar af. Innkeyrsluhurð er út úr rýminu til norðurs og gluggar eru til vesturs.
Annað - Eignin nýtur vatnsréttinda, úr vatnslögn frá borholu í landi Grýtubakka, allt að 100 mínútulítrar, 26 gráðu hiti í opi holunnar um 18-20 gráðu heitt við húsvegg Grýtu - Gólfhiti er í íbúð og verkstæði. - Snjóbræðsla er í verönd. - Ljósleiðari er kominn inn og tengdur. - 3ja fasa rafmagn er á verkstæði. - Vindmylla er við húsið og vinnur á 24 voltum. - Aukakynding, bjálkaketill er í tæknirými og er hann til að auka hita á kerfi hússins m.a. pottinn. - Upphitun Hitaveita - Varmadæla loft í vatn 7 W. frá Panasonic.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
543.9 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2160669
Landnúmer
220511
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Stál
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Íbúðarhluti 2017
Raflagnir
íbúðarhluti síðan 2017
Gluggar / Gler
íbúðarhluti 2017
Þak
Íbúðarhluti síðan 2017
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Suðurverönd
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Grýta í Grýtubakkahreppi Skemmtilegt eign á eignarlóð í Grýtubakkhreppi. Eignin er í dag skráð sem geymsluhúsnæði en skipist þannig að um 70 m² er góð 3ja herbergja íbúð með góðri steyptri verönd og heitum potti, um 150 m² verkstæði/bílskúr - upphitað og einangrað rými og rúmgóð geymsla sem telur um 320 m². Lóðin er 4.606 m² að stærð. Eignin er staðsett í skemmtilegu umhverfi, gott útsýni er frá húsinu og stutt er til Grenivíkur og í vetrarparadísina Kaldbak.
Íbúðin var útbúin árin 2017 - 2018 og þá var byggt við húsið til vesturs. Forstofa er með flísum á gólfi og þar er jafnframt þvottahúsinnrétting og gott skápapláss. Stofa og eldhús eru í einu opnu rými þar er harðparket á gólfi og ljós snyrtileg innrétting. Kamína er í stofunni og útgangur á rúmgóða verönd til suðurs með heitum potti. Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfi. Baðherbergi er flísalagt og þar er ljós innrétting og sturta. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu og handklæðaofn.
Verkstæði/bílskúr. Þessi hluti hússins og einangraður og upphitaður með gólfhita og fóru þær framkvæmdir fram árið 2012. Rafdrifinn innkeyrsluhurð er á suðurhlið hússins en einnig er innkeyrshurð úr þessum hluta yfir í geymslurýmið. Ágætar innréttingar eru á verkstæðinu sem og lýsing. Salerni og geymsla eru í sér rýmum út frá verkstæði, en einnig er innangengt yfir í forstofu íbúðar.
Geymslan er að stærstum hluta óeinangruð en þó eru í henni þrjár upphitaðar geymslur og tæknirými stúkaðar af. Innkeyrsluhurð er út úr rýminu til norðurs og gluggar eru til vesturs.
Annað - Eignin nýtur vatnsréttinda, úr vatnslögn frá borholu í landi Grýtubakka, allt að 100 mínútulítrar, 26 gráðu hiti í opi holunnar um 18-20 gráðu heitt við húsvegg Grýtu - Gólfhiti er í íbúð og verkstæði. - Snjóbræðsla er í verönd. - Ljósleiðari er kominn inn og tengdur. - 3ja fasa rafmagn er á verkstæði. - Vindmylla er við húsið og vinnur á 24 voltum. - Aukakynding, bjálkaketill er í tæknirými og er hann til að auka hita á kerfi hússins m.a. pottinn. - Upphitun Hitaveita - Varmadæla loft í vatn 7 W. frá Panasonic.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.