Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163 netfang: bjarni@remax.is) kynnir bjarta og vel skipulagaða 2ja herbergja íbúð á 3.hæð við Hólabraut 19, 220 Hafnarfirði. Rúmgóðar suður svalir. Samkvæmt HMS er íbúðarhlutinn 55,4fm auk 7,6fm geymslu, samtals 63fm. Frábær fyrstu kaup. Fasteignamat 2027 verður 51.150.000kr.
Nánari upplýsingar veitir Bjarni Blöndal, löggiltur fasteignasali, S: 662-6163, bjarni@remax.is
Nánari lýsing.
Forstofa: Komið er inn í forstofu/hol með góðum skáp.
Stofa/Borðstofa er opin og björt með útgengi út á stórar suður svalir.
Eldhús aðskilið frá stofu með léttum, lágum millivegg, viðarlituð innrétting með flísum á milli, gott skápapláss, spanhelluborð og háfur, tengi fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergi: Rúmgott og bjart með góðum fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, viðarlituð innrétting, sturtuklefi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sér 7,6fm geymsla með glugga í sameign á jarðhæð.
Hjóla og vagnageymsla er í sameign á jarðhæð, í hjólageymslu er sér dekkjarekki fyrir íbúðina
Sama parket er á allri íbúðinni, flísar á baði.
Framkvæmdir samkv seljanda: 2025 voru gluggar, hurðir og þakkantur málað og settar flísar á anddyrið og hluta af 1 hæð. 2026 var skipt um krossvið og sett blikkflasning utaná þakkantinn, einnig skipt um blikk á þaktúðum. Svalir pússaðar, svalagólf málað og gráar plastflísar settar á.
Sameignin er öll hin snyrtilegasta, teppalagður stigagangur, ytra byrði hússins virðist í ágætu ástandi. rasumar Næg bílastæði og gott aðgengi.
Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.