Fasteignaleitin
Opið hús:21. nóv. kl 18:30-19:00
Skráð 20. nóv. 2024
Deila eign
Deila

Fagurhóll 22

RaðhúsSuðurnes/Sandgerði-245
102.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.100.000 kr.
Fermetraverð
666.993 kr./m2
Fasteignamat
45.450.000 kr.
Brunabótamat
53.100.000 kr.
Mynd af Elín Frímannsdóttir
Elín Frímannsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2021
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2366158
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Léleg sparsl vinna. Byggingaraðili lagar áður en eign verður afhent nýjum eiganda. 
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilega 4 herbergja endaíbúð í raðhúsi við Fagurhóll 22, 245 Sandgerði. Birt stærð 102.1 fm. Eignin hefur einstakt hafútsýni, 3 svefnherbergi, baðherbergi, opið eldhús með eyju, rúmgóða stofu, geymslu, sólpall, heitan pott og kaldann. Einstaklega falleg íbúð í rólegum botnlanga steinsnar frá skólum og íþróttamannvirkjum.

Nánari upplýsingar veitir/veita:
Elín Frímanns Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur elin@allt.is.
 

*** Sérsmíðaðar innréttingar í öllum rýmum
*** Kvarts steinn á eldhúsi
*** Upptekin loft.
*** 3 svefnherbergi. 
*** Gólfhiti er í húsinu.
*** Sólpallur út frá stofu með heitum og köldum pottum.
*** Aðeins 40 mín frá höfuðborgarsvæðinu.


Lýsing eignar:
Komið er inn í flísalagða forstofu. 
Geymsla er þar á hægri hönd sem upphaflega var teiknuð sem þvottahús, tengingar bakvið skáp eru enn til staðar.
Baðherbergið er með flísum í hólf og gólf, góðri sésmíðaðri innréttingu, upphengdu salerni, sérsmíðuð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara á baði, vélræn loftræsting í lofti.
Eldhúsið er með sérsmíðaðri innréttingu og kvarts steinplötu. Hellurborð á stórri eyju og stílhreinn háfur þar fyrir ofan, innbyggð tæki ísskáp og uppþvottavél.
Stofan er opin og björt með innfelldri lýsingu, útgengt  á lokaðan afgirtan suð-vestur sólpall með heitum og köldum pottum. Fullkomin hitastýring á pottana í geymslu.
Hjónaherbergið er rúmgott með parket á gólfi og sérsmíðuðum skápum.
Barnaherbergin tvö eru rúmgóð með harðparketi sérsmíðuðum fataskáp í öðru þeirra.

Skemmtileg og björt íbúð og einstaklega vel staðsett innan bæjarfélagsins.
 
Húsið var byggt 2021 úr timbureiningum á staðsteyptum sökkli. Húsið uppfyllir kröfur um algilda hönnun og er í samræmi við byggingarreglugerð 112/2012.  Gólfhitakerfi er lagt á járngrind í miðja steypta plötu. 

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/11/20203.830.000 kr.37.300.000 kr.102.1 m2365.328 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Rafnkelsstaðavegur 8
Bílskúr
Rafnkelsstaðavegur 8
250 Garður
139.3 m2
Einbýlishús
513
501 þ.kr./m2
69.800.000 kr.
Skoða eignina Reynidalur 3
3D Sýn
Skoða eignina Reynidalur 3
Reynidalur 3
260 Reykjanesbær
97.9 m2
Fjölbýlishús
313
673 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Asparlaut 24-26
Skoða eignina Asparlaut 24-26
Asparlaut 24-26
230 Reykjanesbær
98.9 m2
Fjölbýlishús
31
703 þ.kr./m2
69.500.000 kr.
Skoða eignina Dísardalur 9
Skoða eignina Dísardalur 9
Dísardalur 9
260 Reykjanesbær
90.3 m2
Fjölbýlishús
32
719 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin