Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna einstaklega fallega, vel skipulagða og mikið uppgerða 77,6fm, 3ja herbergja íbúð á 3 hæð í fallegu, reisulegu og karakterríku steinhúsi í hjarta Gamla Vesturbæjarins í Reykjavík að Nýlendugötu 22. 4 íbúðir eru í húsinu, 1 á hverjum palli. Einstaklega falleg og björt rými með fallegri gluggasetningu og aukinni lofthæð Húsið er steinsteypt, teiknað af Guðmundi H. Þorlákssyni byggingameistara og byggt árið 1926. Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2018 þar sem eldhús, baðherbergi og eldhús var ma. endurnýjað. Árið 2019 voru byggðar svalir fyrir íbúðina, útfrá eldhúsi. Neysluvatnslagnir, ofnar, skolplagnir og dren var yfirfarið og endurnýjað í kringum aldamótin.
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is
Eignin skiptist í anddyri, gang, 2 svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og geymslu. Allir séreignafermetrar eru innan íbúðar.
Staðsetningin að Nýlendugötu 22 í 101 Reykjavík er einstök að því leyti að hún brúar bilið á milli sögulegrar og rólegrar bæjarstemningar og líflegs miðborgarlífs.Gatan dregur nafn sitt af tómthúsbýlinu Nýlendu, sem stóð neðst við götuna og var reist undir lok 18. aldar. Nýlendugatan var ein af fyrstu skipulögðu götunum í vesturbænum þar sem verkamenn, sjómenn og iðnaðarmenn byggðu sér hús nálægt sjónum. Aðeins örfá skref skilja húsið frá Granda og Gömlu höfninni, sem hefur á síðustu árum breyst í einn vinsælasta og líflegasta krika borgarinnar. Á sama tíma tekur það ekki nema um 5–10 mínútur að ganga inn í Kvosina, að ráðhúsinu eða á Austurvöll. Þá eru skólar á öllum stigum í nágranninu.
Nánari lýsing:
Anddyri / Gangur: Frá stigapalli er komið inn á gang og þaðan er gengið í allar vistaverur. Speglaskápur við enda gangs við hjónaherbergi.
Eldhús: Falleg innrétting með neðri skápum og upphengdum hillum fyrir ofan innréttingu, flísar á milli. Smeg eldavél með gashelluborði, háfur fyrir ofan, innbyggð uppþvottavél og aðstaða fyrir ísskáp við enda innréttingar. Glæsilegt rými í góðri tengingu við stofu. Aukin lofthæð, fallegir gluggar og útgengt út á svalir.
Stofa: Hálf opið við eldhús. Rúmgóð og björt. Aukin lofthæð og fallegir gluggar til tveggja átta.
Baðherbergi: Uppgert á vandaðan og fallegan máta árið 2018. Sturtuklefi með gleri, innrétting með neðri skúffum, vask ofan á og speglaskáp fyrir ofan vask. Salerni og upphengdur handklæðaofn. Gólfið er prýtt tímalausum, hvítum áttstrendum flísum með litlum svörtum ferningum á milli.
Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi með fallegum glugga.
Svefnherbergi II: Gott barnaherbergi með þreföldum fataskáp.
Geymsla: Innan íbúðar á gangi á milli svefnherbergjanna.
Lóð: Eignarlóð, hellulögð að hluta og með tyrfðri flöt að hluta.
Sérlega falleg og vel skipulögð íbúð í afar fallegu steinsteyptu húsi í Gamla Vesturbænum. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu verslun, skólum á öllum stigum ásamt fallegum göngu- og hjólaleiðum meðfram sjónum.
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.