Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 84,1 m2, 3ja herbergja endaíbúð á efri hæð með sérinngangi af svalagangi við Hulduhlíð 9 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í forstofu, gang, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahúsi inn af baði. Góðar svalir til suðurs og sérmerkt bílastæði á lóð framan við hús. Frábær staðsetning þar sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, sundlaug, líkamsrækt, golfvöll og fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni.Samkvæmt upplýsingum frá seljanda var þak hreinsað og málað fyrir ca. 4 árum. Haustið 2025 voru þakrennur yfirfaranar og hreinsaðar.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sentNánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Gangur er með parketi á gólfi.
Stofa er opin við eldhús, björt með glugga á tveimur hliðum og parketi á gólfi. Útgengt er úr stofu á svalir til suðurs.
Eldhús er með parketi á gólfi og L-laga innréttingu með uppþvottavél, bakaraofni, helluborði og viftu. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með fataskáp og dúk á gólfi.
Svefnherbergi 2 er inn af forstofu með fataskáp og dúk á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfum og veggjum, innréttingu með handlaug, baðkar með sturtuaðstöðu, handklæðaofni og upphengdu salerni. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús er inn af baðherbergi með dúk á gólfi aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Geymsla er innan íbúðar og er einnig hægt að nýta sem skrifstofu eða gluggalaust herbergi.
Loft er yfir íbúðinni sem er notað í dag sem geymsluloft og er fellistigi á gangi til þess að komast þar upp.
Hjóla- og vagnageymsla er á jaðhæð framan við húseign.
Bílastæði merkt íbúð er framan við hús.
Verð kr. 70.600.000,-