Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna hluta af jörðinni Kanastöðum, skammt austan við Hvolsvöll og stutt frá þjóðvegi nr. 1.
Svæðið er miðpunktur Suðurlands með nálægð við Seljalandsfoss, Þórsmörk, Eyjafjallajökul og Njáluslóðir.
Til sölu er land frá 50 hekturum en jörðin er í heild sinni um 230 hektarar.
Landið einkennist af víðáttumiklu landslagi, nálægð við bugðóttan árfarveg sem liðast um svæðið og stórkostlegu útsýni til fjalla.
Verð fyrir 50 hektara lands er kr. 30.000.000. Þar sem landið er ekki skipulagt getur stærð og staðsetning innan jarðarinnar verið breytileg samkvæmt samkomulagi milli væntanlegra kaupenda og seljanda, og notkun því sveigjanleg.
Hér gefst einstakt tækifæri til að eignast land á friðsælum stað þar sem kyrrðin, víðáttan og náttúrufegurðin skapa einstaka stemningu. Kanastaðir njóta afar góðrar staðsetningar í nálægð við Hvolsvöll, á einum vinsælasta ferðamannakjarna landsins. Svæðið býður upp á fjölmarga möguleika hvort sem horft er til frístundanota, skógræktar, uppbyggingar ferðaþjónustu eða búsetu. Umhverfið er opið og ósnortið með víðáttumiklu útsýni til fjallahringsins í kring og til Vestmannaeyja.
Sjá staðsetningu HÉR!Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.