Fasteignaleitin
Skráð 9. júní 2026

Hverfisgata íbúð 302 83

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
58.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
58.900.000 kr.
Fermetraverð
1.006.838 kr./m2
Brunabótamat
41.000.000 kr.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22139211
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali kynna nýja einstaka uppgerða eign í sölu;
Hverfisgata 83 er virðulegt fjölbýlishús kallað Bjarnaborgin þar sem lokaður inngarður og vernduð ásýnd hússins og vönduð vinnubrögð við uppgerð hússins og íbúðanna sýna virðingu við sögu þess og Reykjavíkurborgar.
Um er að ræða íbúð merkt 0302 við Hverfisgötu 83, 2ja herbergja íbúð með sérinngangi frá svölum í einstöku húsi í hjarta Reykjavíkur.
Eignin er skráð 58,5 fm. skv. Fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðin sjálf 52,1 fm. og sérgeymsla mekrt 01-0013 6,4 fm.
Íbúðin er á þriðju og efstu hæð og hluta til undir súð - gólfflötur er því nokkuð stærri en birt stærð gefur til kynna.

Íbúðirn eru nýlega uppgerðr með pússuðu, gegnheilu Merbau-harðviðarparketi á gólfum, nýlegri innréttingu í eldhúsi ásamt eldhústækjum og ísskáp, gluggi í eldhúsi snýr inn í garðinn og er opnanlegur.
Stofa er björt með gluggum í vestur, gengið er út á svalir sem snúa í  austur inn í fallegan inngarð.
Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskápum, það er opið rými en seljendur geta sett upp hurð.
Baðherbergi er dúklagt með baðkari, salerni og handlaug, mögulegt er að tengja þar þvottavél. Gluggi með opnalegu fagi er á baðherbergi. 
Forstofa - flestar með fataskáp eða aðstöðu til að setja upp fatahengi.
Í húsinu eru 15 tveggja herbergja íbúðir, allar með sérgeymslu, sameiginlegri vagna- hjólageymslu, sameiginlegu þvottahúsi og fallegum inngarði með bekkjum og gróðri. Stigahús í garðinum er með lyftu og því gott aðgengi að íbúðunum.
Geymslur í sameiginlegu rými í kjallar merkt 01-0013 er 6,4 fm. Í sameign á jarðhæð er rúmgott, sameiginlegt þvottahús.
Íbúar/eigendur geta sótt um íbúakort fyrir gjaldfrítt bílastæði skv. reglum Reykjavíkurborgar en einnig er bílastæðahúsið við Vitaorg stærsta bílastæðahús á höfuðborgarsvæðinu og almennt styst bið eftir langtíma leigu bílastæðis þar.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar með eldhústækjum, húsið verður full málað að utan sumarið 2025 og garður snyrtur og hellur lagaðar fyrir afhendingu eignanna.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Esja fasteignasala
www.esjafasteignasala.is

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugavegur 63 - 2 bílastæði
Laugavegur 63 - 2 bílastæði
101 Reykjavík
127.4 m2
Fjölbýlishús
312
706 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Hvammabraut 12
Opið hús:02. júlí kl 16:30-17:00
Skoða eignina Hvammabraut 12
Hvammabraut 12
220 Hafnarfjörður
77.8 m2
Fjölbýlishús
312
770 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 19,íb. 602
Bílastæði
Hringhamar 19,íb. 602
221 Hafnarfjörður
98.3 m2
Fjölbýlishús
413
833 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 15,íb.702
Bílastæði
Hringhamar 15,íb.702
221 Hafnarfjörður
100.2 m2
Fjölbýlishús
312
917 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin