Fasteignaleitin
Skráð 14. okt. 2026

Þönglabakki 6

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
79.9 m2
Verð
59.999.000 kr.
Fermetraverð
750.926 kr./m2
Brunabótamat
26.450.000 kr.
Byggt 1989
Fasteignanúmer
20468282
Húsgerð
Atvinnuhúsn.

Borg fasteignasala kynnir: Vel staðsett 79,9 m² verslunar- og þjónusturými við Þönglabakka 6 í 109 Reykjavík. Eignin er skráð sem verslun og er staðsett í Mjódd, á grónu og þekktu verslunar- og þjónustusvæði með góðu aðgengi og sýnileika að göngusvæði.

Rýmið hefur verið nýtt undir snyrti- og naglastofu og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika. Eignin gæti hentað vel undir verslun, þjónustu, snyrtistofu, heilsutengda starfsemi, skrifstofu eða annan sambærilegan rekstur, eftir nánari skoðun kaupanda.
Eignin skiptist í rúmgott og bjart aðalrými, vinnuherbergi, kaffiaðstöðu/starfsmannaaðstöðu, geymslurými og snyrtingu.

Nánari lýsing:
Móttaka/biðsvæði: 
Við inngang er aðstaða fyrir móttöku og biðsvæði. Inngangur er beint frá göngusvæði og eignin nýtur góðs sýnileika.
Aðalrými: Bjart og opið rými með góðum gluggum að göngusvæði. Rýmið er í dag innréttað sem snyrti- og naglastofa með móttöku-/biðsvæði og nokkrum vinnustöðvum. Ljóst gólfefni er á rýminu og góð lýsing í lofti.
Vinnuherbergi: Inn af aðalrými er sérstakt herbergi sem nýtist vel sem meðferðarherbergi, skrifstofa eða lokað vinnurými.
Kaffiaðstaða/starfsmannaaðstaða: Sér rými með innréttingu, vaski, efri skápum og aðstöðu fyrir kaffiaðstöðu/starfsmannaaðstöðu.
Geymsla/lager: Geymslurými með hillum og góðu plássi fyrir vörur, tæki og annan rekstrarbúnað.
Snyrting: Snyrting með salerni og handlaug. Einnig er vaskaaðstaða í rýminu.
Aðkoma og umhverfi: Eignin er staðsett í Mjódd, einu þekktasta verslunar- og þjónustusvæði Breiðholts. Í næsta nágrenni er fjölbreytt verslun og þjónusta ásamt góðu aðgengi fyrir viðskiptavini. Inngangur er frá yfirbyggðu göngusvæði og eignin nýtur góðs sýnileika.
Annað: Lausir munir, tæki og búnaður tengdur núverandi starfsemi geta verið til sölu eftir nánara samkomulagi.

Nánari upplýsingar veitir:
Díana Thanh Andradóttir, aðstoðamaður fasteignasala, í síma 868-0146 eða diana@fastborg.is
Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali, í síma: 868-2222 eða victor@fastborg.is



 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álhella 7
Skoða eignina Álhella 7
Álhella 7
221 Hafnarfjörður
84,6 m2
Atvinnuhúsn.
514 þ.kr./m2
43.500.000 kr.
Skoða eignina Dalsel 12
Bílastæði
Skoða eignina Dalsel 12
Dalsel 12
109 Reykjavík
95,5 m2
Fjölbýlishús
312
680 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Austurberg 28
Efsta hæð
Skoða eignina Austurberg 28
Austurberg 28
111 Reykjavík
74,6 m2
Fjölbýlishús
211
696 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Álhella 5
Skoða eignina Álhella 5
Álhella 5
221 Hafnarfjörður
70,3 m2
Atvinnuhúsn.
354 þ.kr./m2
24.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin