Fasteignasalan TORG kynnir: Vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með 5,8 fm aflokaðri verönd til suðurs. Útgengi út á verönd frá stofu og einnig frá svefnherbergi.
Allar upplýsingar veitir Jóhanna Kristín fasteignasali, johanna@fstorg.is og í síma 837-8889.
Sjá söluyfirlit hér:Samkvæmt FMR er eignin samtals 55,9 fm. Íbúðin 48,4 fm og sérgeymsla í sameign 7,5 fm.
Eignin skiptist í alrými eldhús og stofu, svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Komið er inn í alrými eldhúss og stofu með fataskáp við innganginn. Eldhús er með hvítri innréttingu. Stálofn í neðri innréttingu, keramikhelluborð og vifta. Innbyggður ísskápur með frysti og innbyggð uppþvottavél. Frá stofu er útgengi út á verönd í suður. Svefnherbergi með rúmgóðum fataskáp eftir heilum vegg og útgengi út á verönd í suður. Baðherbergi með hvítri inréttingu, upphengt salerni og handklæðaofn. Flísalögð sturta með glerskilrúmi. Innrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Hluti af húsgögnum getur fylgt með.
Hér er um að ræða frábær fyrstu kaup vel miðsvæðis í Reykjavík. Hverfið í Efstaleiti er með fallegum sameiginlegum miðjugarði, opin hjólageymsla er í garði. Stutt er í flesta þjónustu, göngufæri í Kringluna og í góðar almenningssamgöngur. Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir fasteignasali gsm: 837-8889, johanna@fstorg.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. TORG fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.500,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um kr. 50.000.-
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900,- með vsk.