Guðbjörg Helga og Gylfi Jens löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX kynna Sóltún 5, 105 Reykjavík.Mjög björt og skemmtileg 3-4 herbergja 103,4 fm íbúð á 3. hæð með rúmgóðum suðursvölum með glerlokun og sérstæði í bílakjallara á góðum stað gengt innkeyrsluhurð. Í íbúð er ein geymsla en svo fylgja tvær rúmgóðar geymslur í kjallara og er önnur þeirra utan fermetratölu. Húsið var byggt árið 2000 og er 7 hæða með gróinni lóð og sameiginlegum bílastæðum þar, auk bílakjallara. Húsið er klætt að utan og því viðhaldslétt. Sameign er afar snyrtileg. Rafstýrðar hurðaopnanir eru í sameign og myndavéladyrasími. Lyfta er í húsinu. öll þjónusta og fjöldi verslana í næsta nágrenni.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. **SÆKTU SÖLUYFIRLIT HÉR MILLILIÐALAUST**
** 3-D: SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD OG MÁTAÐU ÞIG OG HÚSGÖGNIN ÞÍN MEÐ MÆLISTIKUNNI - SMELLTU HÉR**Núverandi skipulag:Forstofa, stofa, borðstofa, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi, þvottahús, geymsla innan íbúðar, svalir og 2 sérgeymslur í kjallara, stæði í bílakjallara.
Nánari lýsing:Samstætt eikarparket er í íbúðinni, fyrir utan þvottahús og baðherbergi þar sem eru flísar.
Forstofa: Parket á gólfi og góðir fataskápar.
Stofa/ Borðstofa: Björt og rúmgóðar stofur með eikarparketi á gólfi og sólbekkjum við glugga. Útgengi út á suðursvalir með glerlokun en hægt er að renna glerinu til hliðar. Lausar viðarflísar á svalagólfi. Rafmagnstengill á svölum.
Eldhús: L-laga viðarinnrétting með glerhurðum að hluta og hvítri borðplötu, helluborð, vifta, bakaraofn í góðri vinnuhæð og uppþvottavél. Nettur borðkrókur. Útgengi bæði í stofu og borðstofu. Vaskur er með rafmagnskvörn. Flísar á gólfi og á milli innréttinga á vegg. Veggur milli eldhúss og stofu er léttur án burðar ef fólk vill sameina eldhús við stofur.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Hornsturtuklefi. Ljós innrétting með handlaug og skápum undir og vegghengdum speglaskáp. Hvítur tvöfaldur skápur með speglahurðum. Upphengt salerni, hvítur handklæðaofn.
Herbergi I: Rúmgott með stórum skáp eftir einum vegg. Eikarparket á gólfi.
Herbergi II: Rúmgott með tvöföldum skáp. Eikarparket á gólfi.
Þvottahús: Flísar á gólfi og stálvaskur.
Geymsla I innan íbúðar: Nett og gæti nýst vel sem fataherbergi eða lítil geymsla.
Geymsla II í kjallara: 5,9 fm að stærð og er í uppgefnum fermetrum íbúðar.
Geymsla III í kjallara: Búið er að stúka af sameignarrými og skipta þvi upp í læstar geymslur. Þessi geymsla er tæpir 5 fm og er utan uppgefinna fermetra.
Sérstæði í afar snyrtilegri bílageymslu. Búið er að leggja nýja rafmagnsstofna í bílageymslu, sem auðveldar að setja upp rafhleðslustöð.
Afar snyrtileg sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð næst lyftu. Sérútgangur er þar fyrir hjól og vagna.
Samantekið er þetta afar sjarmerandi og skemmtileg 3-4 herbergja íbúð á vinsælum stað í viðhaldsléttu alklæddu húsi vel staðsett í Túnunum, rétt við Teigahverfið og miðborgina. Verslanir, skólar, íþróttastarf og ýmis þjónusta er í göngufjarlægð. Frá íbúðinni er víðsýnt og sést aðeins í Esjutoppana, lágreistur leikskóli er á lóðinni gengt húsinu. Næg bílastæði.
Allar nánari upplýsingar veita:
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í netfanginu
gudbjorg@remax.is og
síma 897 7712.Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður í netfanginu
gylfi@remax.is og
síma 822 5124.