Pétur Ásgeirsson og Brynjar Ingólfsson löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: Fallega 3ja herbergja, 95.4m2 íbúð ásamt 41,7m2 bílastæði í bílastæðahúsi, á góðum stað við Flétturima 2, 112 Reykjavík. Eignin skiptist þannig að íbúðin sjálf er 88,4, geymsla 7 fm skv. HMS.
Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D// Frábær staðsetning.
// Stæði í bílakjallara.
// Mikið endurnýjuð að innan.
// Suðvestur svalirNánari lýsing: Forstofa: Parket á gólfi og með rúmgóðum fataskáp.
Eldhús/stofa/borðstofa er í opnu rými.
Eldhús: Ný falleg innrétting með miklu skápa og vinnu plássi og stórri eyju, pláss fyrir 2 faldan ísskáp.
Stofa og borðstofa: Parket á gólfi, eru í einu opnu og rúmgóðu rými, úr stofu er útgengt út á suð/vestur svalir.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, rúmgott með stórum fataskáp.
Barnaherbergi: Parket á gólfi og með fataskáp., mjög rúmgott.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, er með fallegri ljósri innréttingu, baðkari og sturtu.
Þvottahús: Er með fallegri innréttingu með miklu skápa plássi, þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Geymsla: Er 7 fm og er í sameign á jarðhæð ásamt hjólageymslu.
Bílastæði er í bílastæðahúsi á jarðhæð. Góð aðstaða til að þvo bíla á tveimur stöðum í bílastæðahúsinu. Þar er einnig aðstaða til að geyma dekk.
Sameign er öll hin snyrtilegasta og húsinu hefur verið haldið vel við.
Eignin er á mjög góðum stað rétt við verslunarmiðstöðina Spöngina. þar er m.a. Hagkaup, Bónus, Vínbúðin, fjöldi verslana, apotek og læknaþjónusta. Góðar samgöngur eru með almenningsvögnum frá Spönginni.
Framkvæmdir íbúðar:-Rifið vegg á milli stofu og eldhús
-Ný innrétting í eldhúsi
-Bætt við eyju
-Skipt um gólfefni (Vinyl frá Birgisson)
-Skipt um hurðarkarma fyrir svefnherbergi og salerni og málað hurðir
-Sett stillanlegan felliþröskuld í svefnherbergishurðir
-Ný innrétting í þvottahúsi
-Ný fúga á baðherbergi (2021)
Framkvæmdir sameignar:-Var málað þak og lagað þak kanta
-Var endurnýjað mikið af pípulögnum í Flétturima 2,4,6,8 ásamt sameign (bræðslukerfi á stétt og rampi fyrir bílakjallara)
-Tvær hleðslustöðvar settar upp fyrir framan hús á tveimur stöðum og einnig er búið að gera allt tilbúið fyrir uppsetningu á hleðslustöð í öllum bílastæðum í kjallara
-Nýtt teppi á stigaganginum (2021), djúphreinsað 2024.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.