Eignatorg kynnir: Glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum rúmgóðum bílskúr sem stendur á rólegum stað í lokuðum botnlanga. Húsið er steinað að utanverðu og því viðhaldslétt. Sérlega vel við haldið og vel um gengið hús. Þakið var málað árið 2020. Kjartan Sveinsson teiknaði húsið og Edda Ríkaharðsdóttir innanhúss arkitekt hannaði innréttingar o.fl.
Skv. skráningu Þjóðskrár er íbúðarhlutinn 190,6 fm og bílskúrinn 47,1 fm. Samtals er eignin því skráð 237,7 fm.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa með flísum á gólfi og forstofuskápum.
Forstofuherbergi með flísum á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2019. Er með flísum á gólfi, hita í gólfi, flísum á veggjum, handklæðaofni, sturtu, innbyggðu tæki, innréttingu, upphengdu salerni og glugga.
Eldhúsið var endurnýjað árið 2019. Er afar rúmgott með parketi á gólfi, glæsilegri innréttingu, spanhelluborði, tveimur ofnum, rúmgóðum borðkrók og gluggum.
Þvottahús er inn af eldhúsinu er með flísum á gólfi, vinnuborði, skolvaski og glugga.
Stofan er rúmgóð og björt með parketi á gólfi, arni, tveimur hurðum út í garðinn, önnur tvöföld og gluggum á tvo vegu. Út frá stofu er rúmgóður sólpallur með háum skjólveggjum, markísu og heitum potti.
Garðurinn er í góðri rækt og sérlega fallegur.
Efri hæð:
Stigi á milli hæða er steyptur og parketlagður.
Sjónvarpshol með parketi á gólfi, gluggum til suðurs og hurð út á suðvestur svalir.
Baðherbergi með flísum á gólfi, hita í gólfi, flísum á veggjum, handklæðaofni, innréttingu, stein borðplötu, hornbaðkari, sturtu, upphengdu salerni og glugga.
Hjónaherbergið er rúmgott með parketi á gólfi. Inn af hjónaherberginu er gott fataherbergi með parketi á gólfi og innréttingum.
Herbergi I með parketi á gólfi.
Herbergi II með parketi á gólfi og skáp.
Herbergi III með parketi á gólfi.
Geymslur eru í risi.
Bílskúrinn er rúmgóður með tveimur gönguhurðum, rafdrifnum opnara á innkeyrsluhurð, gluggum og epoxy gólfhúð. Gert er ráð fyrir hleðslustöð.
Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 0 - 95.000.- Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.