Fasteignasalan BÆR, Auður & Ólafur kynna: Einstaklega bjarta, vel skipulagða og mikið endurnýjaða 129,4 fm 4ra herbergja íbúð á 1. hæð með sérinngangi að Sólbarði á Álftanesi. Eigninni fylgir um 30 fm skjólsæll sólpallur til suðurs með vandaðri saunutunnu. Frábær fjölskyldueign á rólegum og eftirsóttum stað þar sem stutt er í skóla, sundlaug, golfvöll og ósnortna náttúru Álftaness.
*** Bókið einkaskoðun hjá Auði í síma 824 7772 eða audur@fasteignasalan.is eða Ólafi hjá olafur@fasteignasalan.is ***
Helstu kostir eignarinnar- Sérinngangur og gott aðgengi.
- Mikið endurnýjuð eign.
- Um 30 fm afgirtur sólpallur til suðurs með sér afnotarétti og saunutunnu.
- Rúmgott eldhús með miklu skápaplássi og góðu vinnuplássi.
- Endurnýjað baðherbergi með rúmgóðum sturtuklefa.
- Skrifstofurými/vinnuhol sem nýtist vel við fjarvinnu.
- Bílskúrsréttur samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu (háð samþykki Garðabæjar).
- Tengill fyrir hleðslustöð rafbíla til staðar.
- Viðhaldslítil klæðning á húsi.
- 920 fm gróin eignarlóð.
Nánari lýsingAðkoma og forstofa: Gengið er inn um sérinngang. Komið er inn í snyrtilega forstofu með fataskáp og glugga sem hleypir inn góðri birtu.
Hol og gangur: Rúmgóður gangur tengir saman rými íbúðarinnar. Á vinstri hönd eru svefnherbergin og eldhús, en þvottahús/geymsla og baðherbergi eru á hægri hönd.
Eldhús: Sérlega rúmgott með fallegri L-laga innréttingu. Mikið skápapláss, góð vinnuborð og gluggar sem gefa skemmtilega birtu. Eldhúsið er einstaklega fjölskylduvænt með góðu plássi til matargerðar.
Stofa og borðstofa: Bjart og aðlaðandi alrými sem snýr til suðurs. Útgengt er um svalahurð beint út á um 30 fm sólpall, sem stækkar rýmið til muna yfir sumarmánuðina.
Sólpallur og sauna: Skjólgóður pallur til suðurs með sér afnotarétti. Á pallinum stendur glæsileg saunutunna sem skapar fullkomna slökun og heilsulindarstemningu heima fyrir.
Hjónaherbergi og vinnurými: Hjónaherbergið er búið fataskápum með rennihurð sem tryggir hámarksnýtingu á rýminu. Við hlið hjónaherbergis er opið hol sem hentar einstaklega vel sem heimaskrifstofa eða lestrarhorn.
Barnaherbergi: Tvö rúmgóð og björt herbergi með fataskápum og gluggum til suðurs.
Baðherbergi: Smekklega innréttað og endurnýjað baðherbergi með upphengdu salerni, snyrtilegri handlaugainnréttingu og einstaklega rúmgóðum sturtuklefa.
Þvottahús og geymsla: Sameiginlegt rými innan íbúðar með vönduðu epoxy á gólfi, góðu geymsluplássi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Aukin tækifæri / Dulið rými (1,7 fm): Í íbúðinni er lokað rými þar sem áður lá innangengur stigi milli hæða þegar húsið var einbýli. Með því að fjarlægja stigann býðst tækifæri til að bæta um 1,7 fermetrum við nýtanlegt gólfflöt íbúðarinnar (t.d. sem auka geymslupláss eða skáp).
Húsið, lóðin og nánari upplýsingarByggingarár og skráning: Húsið er byggt árið 1947. Samkvæmt Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) er eignin skráð 129,4 fm á 1. hæð (íbúð 01-01-01).
Húsið að utan: Húsið er klætt með viðhaldslítilli klæðningu. Um er að ræða tvíbýlishús á 920 fm sameiginlegri eignarlóð. Vegna halla í landslagi hafa báðar íbúðir beint aðgengi frá götu og hafa báðar byggt sér sólpalla.
Bílastæði og rafhleðsla: Tengill fyrir hleðslustöð rafbíla er við eignina.
Bílskúrsréttur: Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu fylgir eigninni réttur til byggingar bílskúrs, en sækja þarf um byggingarleyfi hjá skipulagsyfirvöldum í Garðabæ.
Rafmagn: Samkvæmt upplýsingum frá fyrri eigendum var rafmagn íbúðarinnar endurnýjað að mestu leyti í kringum árið 2016.
Frávik frá samþykktri teikningu: Skipulagi hefur verið breytt til að auka hagkvæmni og rýmisnýtingu: Eldhús hefur verið fært yfir í herbergi sem á teikningu var 10,8 fm. Fyrra eldhús er nýtt sem barnaherbergi. Hjónaherbergi er merkt sem vinnuherbergi á teikningu, borðstofa nýtt sem skrifstofa/hol og fyrra fataherbergi hefur verið sameinað baðherberginu.
Staðsetning og nærumhverfiSólbarð er róleg og fjölskylduvæn gata á Álftanesi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Álftanesskóli, leikskóli, íþróttasvæði, sundlaug Álftaness og golfvöllur eru í göngu- eða hjólafæri, auk þess sem fjaran og ósnortin náttúra bjóða upp á einstakar gönguleiðir allt um kring.
Allar nánari upplýsingar veita:
Auður Sigr Kristinsdóttir löggiltur fasteignasali s 824-7772 & tölvupóstur audur@fasteignasalan.is
Ólafur Tr Thors löggiltur fasteignasali s 666-8-777 & tölvupóstur olafur@fasteignasalan.is
Auður & Ólafur eru í Félagi Fasteignasala.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og til húsfélags, þegar um það er að ræða. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.