Fasteignaleitin
Skráð 5. ágúst 2026

Fögruvellir

EinbýlishúsVesturland/Hellissandur-360
154.4 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
26.050.000 kr.
Brunabótamat
34.830.000 kr.
Mynd af Aðalsteinn Bjarnason
Aðalsteinn Bjarnason
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1930
Garður
Pallur
Heitur pottur
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2114498
Landnúmer
136566
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað - Neysluvatns og ofnalagnir, miðstöðvarofnar (2012)
Raflagnir
Endurnýjað - Bæði dregið og sett ný tafla (2012)
Frárennslislagnir
Endurnýjað - Skólplögn og rotþró 2023, Drenlögn 2009,
Gluggar / Gler
Endurnýjað (2011)
Þak
Endurnýjað að hluta - Yfirfarið og sett ný einangrun (2014)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Timburverönd
Lóð
100
Upphitun
Rafmagnshitun - Vatn
Inngangur
Tveir inngangar
Fasteignasalan TORG og Aðalsteinn Bjarnason lgf. kynna í einkasölu Fögruvelli á Hellissandi – mjög mikið endurnýjað og einstaklega sjarmerandi íbúðarhús með sögu og karakter, ásamt nýbyggðu 45,8 m² aukahúsi sem er fullfrágengið að utan en ófullgert að innan. Eignin stendur á stórri lóð við jaðar byggðarinnar og nýtur opinnar og friðsællar legu með fallegu útsýni yfir í þjóðgarðinn til Snæfellsjökuls og til sjávar. Íbúðarhúsið var upphaflega byggt árið 1930 en hefur verið endurnýjað að mjög verulegu leyti, bæði að utan og innan. Meðal þess sem hefur verið endurnýjað eru gluggar, útihurðir, karmar, klæðningar, lagnir og rafmagn. Við endurbæturnar hefur verið lögð áhersla á að varðveita hlýlegt yfirbragð og upprunalegan karakter hússins. Íbúðarhúsið skiptist þannig að á 1. hæð er anddyri, opið eldhús, borðstofu, stofu og baðherbergi ásamt stigum bæði upp í ris og niður í kjallara. Í risi er stórt opið rými sem nýtist sem svefnrými, en hefur möguleika á að skipta upp í fleiri herbergi. Í kjallara eru tvö herbergi, þvottarými  með lagnagrind og geymsla. Aukahúsið er hugsað sem gestahús og vinnustofa með stúdíó íbúð og þvottarými. Stór timburverönd tengir saman húsin í bakgarði og er útgengt úr báðum húsum út á veröndina. Hér er á ferðinni afar sérstök eign sem sameinar sjarma eldri húsa, umfangsmiklar endurbætur, einstaka staðsetningu, fjölbreytta framtíðarmöguleika og alveg einstakt útsýni. - Sjón er sögu ríkari.

Helstu kostir eignarinnar
*   Að mestu endurnýjað íbúðarhús frá 1930 með sögu og karakter.
*   Endurnýjaðir gluggar, útihurðir, karmar, klæðningar, lagnir og rafmagn.
*   Björt og hlýleg rými með góðri lofthæð, viðarklæðningu og sýnilegum bitum.
*   Rúmgott og opið svefnloft, með möguleika.
*   Tvö viðbótarherbergi og þvottahús í kjallara.
*   Nýbyggt 45,8 m² aukahús, fullfrágengið að utan.
*   Stór timburverönd sem tengir húsin saman.
*   Rúmgóð lóð við jaðar byggðar með opinni og friðsælli legu.
*   Fallegt útsýni til Snæfellsjökuls og stutt í stórbrotna náttúru.
*   Fyrirhugaður baðstaður við Krossavík í um 500 metra fjarlægð.


Nánari lýsing og skipting eignahluta:

ÍBÚÐARHÚS - 1. HÆÐ
Anddyri og hol
er með flísum á gólfi. Þaðan liggur opinn stigi upp á efri hæð.
Stofan er björt og notaleg með gluggum á fleiri en eina hlið. Hvítmáluð viðarklæðning, fallegt viðarloft og hlýlegt yfirbragð setja sterkan svip á rýmið. Stofan er opin við eldhús og borðstofu þaðan sem útgengi er á verönd.
Eldhús er bjart með hvítri og viðarlitaðri innréttingu ásamt gaseldavél (ekki á mynd), sem er með gaskút í kassa fyrir utan hús.
Borðstofa er samliggjandi eldhúsi og stofu með borðaðstöðu við glugga og útgengi á verönd.
Baðherbergi er með baðkari, salerni og handlaug. Gluggi er á rýminu og viðarklæðning í lofti. Veggir og gólf með flísum.

ÍBÚÐARHÚS - RIS
Á efri hæð er stórt opið svefnrými með viðargólfi, mikilli lofthæð undir mæni en að hluta til undir súð. Sýnilegir bitar og miðlægur skorsteinn undirstrika karakter hússins. Þar mætti einnig gera góða aðstöðu fyrir setustofu, sjónvarpsrými eða vinnuaðstöðu.

ÍBÚÐARHÚS - KJALLARI (óskráð rými)
Stigi er af 1. hæð í kjallara og þar eru tvö herbergi sem hafa verið nýtt sem svefnherbergi. Þar er einnig þvottahús með vaski, vinnuborði og tengi fyrir þvottavél. Geymsla undir útitröppum er aðgengileg í kjallara. Útgengi er úr þvottahúsinu. - Kjallararýmið virðist ekki vera innifalinn í skráðri stærð íbúðarhússins.

AUKAHÚS (ÁÐUR BÍLSKÚR)
Á grunni eldri bílskúrs stendur nýbyggt 45,8 m² aukahús sem reist hefur verið samkvæmt samþykktum aðalteikningum. Húsið er fullfrágengið að utan með dökkri bárujárnsklæðningu, þaki, gluggum og hurðum. Að innan er það ófullgert en komið vel áleiðis. Þar hefur meðal annars verið unnið að einangrun, lögnum, rafmagnsundirbúningi og klæðningu hluta veggja. Aukahúsið býður upp á fjölbreytta framtíðarmöguleika og tækifæri fyrir nýjan eiganda til að fullgera það eftir eigin þörfum, með fyrirvara um samþykkta og skráða notkun.

LÓÐIN OG STAÐSETNINGIN
Fögruvellir standa á stórri og náttúrulegri lóð við jaðar byggðarkjarnans á Hellissandi. Legan veitir eigninni opið og friðsælt yfirbragð ásamt fallegu útsýni yfir nærliggjandi landslag og til Snæfellsjökuls. Umhverfis íbúðarhúsið og á milli húsanna hefur verið útbúin einstaklega rúmgóð timburverönd. Hún tengir húsin vel saman og skapar skemmtilega og skjólsæla útiaðstöðu. Stutt er í stórbrotna náttúru Snæfellsness og fjölbreytta útivist við þjóðgarðinn Snæfellsjökul. Fyrirhugaður baðstaður við Krossavík verður í aðeins um 500 metra fjarlægð frá eigninni, en þar er meðal annars gert ráð fyrir upphitaðri sjávarlaug, heitum potti, gufuböðum, köldum pottum og aðgengi að ströndinni.

***   Íbúðarhúsið hefur verið endurnýjað að mjög miklu leiti, bæði að utan sem innan   ***
*   - Öll einangrun veggja endurnýjuð 2009.
*   - Drenlögn sett við húsið 2009.
*   - Burðavirki endurnýjað að hluta (þar sem þurfti). Ca. 2009-2011
*   - Endurbætur á innra skipulagi og yfirborðsfrágangi 2009-2011.
*   - Endurnýjun glugga, útihurða og karma 2010-2011.
*   - Endurnýjun á bæði úti og inni vegg klæðningum 2010-2011.
*   - Nýjar pípulagnir, neysluvatnlagnir, ofnalagnir og miðstöðvarofnar 2012.
*   - Nýtt rafmagn dregið og ný rafmagnstafla 2012.
*   - Einangrun í þaki endurnýjuð 2014.
*   - Gólf hússins voru endurnýjuð og styrkt í kringum og nýr stig smíðaður á milli hæða 2015.
*   - Smíði á undirstöðum og timburverönd við húsið.
*   - Ný skólplögn og rotþró sett 2023

Endurbæturnar falla vel að aldri og yfirbragði hússins og hefur hlýlegum karakter þess verið haldið til haga.

Skráning eignar og heildarstærð
Samkvæmt fasteignayfirliti HMS er eignin skráð samtals 109,0 m², þar af er Íbúðarhús, byggt árið 1930, 68,6 m² og Bílskúr, byggður árið 1974, 40,4 m².  Skráði bílskúrinn hefur verið rifinn og nýtt 45,8 m² aukahús reist á grunni hans samkvæmt samþykktum teikningum. Skráning hjá HMS virðist því ekki að öllu leyti endurspegla núverandi húsakost. Þá virðist hluti kjallararýmis íbúðarhússins ekki vera innifalinn í skráðri stærð þess.  Kaupendum er bent á að kynna sér fasteignayfirlit, samþykktar teikningar, byggingarleyfi og stöðu skráningar eignarinnar fyrir tilboðsgerð.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/01/20087.049.000 kr.3.000.000 kr.109 m227.522 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1930
40 m2
Fasteignanúmer
2114498
Byggingarefni
Steypa
Númer hæðar
00
Númer eignar
01
Byggt 1974
45.8 m2
Fasteignanúmer
2114498
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
4.530.000 kr.
Lýsing
- áður 40,4 m2 bílskúr

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Dehesa de Campoamor
SPÁNAREIGNIR - Dehesa de Campoamor
Spánn - Costa Blanca
157 m2
Einbýlishús
433
918 þ.kr./m2
144.200.000 kr.
Skoða eignina Hrafnaklettur 5
Á einni hæð
Opið hús:06. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hrafnaklettur 5
Hrafnaklettur 5
310 Borgarnes
159.3 m2
Raðhús
413
476 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Leynisbraut 8
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Leynisbraut 8
Leynisbraut 8
300 Akranes
167.9 m2
Raðhús
413
655 þ.kr./m2
110.000.000 kr.
Skoða eignina Ásabraut 10
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Ásabraut 10
Ásabraut 10
300 Akranes
151.4 m2
Raðhús
312
627 þ.kr./m2
95.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin