ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:Vallargata 9, 245 Sandgerði, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 209-5223 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR, birt stærð 86.3 fm.
Virkilega spennandi einbýlishús á góðum stað í Sandgerði, í göngufæri við skóla, sundlaug, verslun og helstu þjónustu. Einbýlishúsið hefur
3 góð svefnherbergi, sér
þvottahús,
baðherbergi með baðkari,
eldhús með ágætri innréttingu og rými fyrir eldhúsborð.
Stofa er björt með útgengi út á nokkuð stóran
sólpall með heitum potti og góðum skjólveggjum.
Geymsluloft er yfir öllu húsinu, hleri í þvottahúsi og
kjallari undir hluta hússins, gengið er inn í hann frá bakhlið hússins..
* Virkilega vel nýttir fermetrar
* Búið er að endurnýja raflagnir
* Þakjárn endurnýjað fyrir 11 árum
* Búið er að opna forstofu og opna inn í eldhús
* Búið er að bæta við þriðja svefnherberginu með því að minnka þvottahús
* Steypt plata/púði fyrir bílskúr í enda innkeyrslu
* Búið er að helluleggja innkeyrslu
* Stór og gróin lóð með litlum kofa í garði.
Nánari upplýsingar veitir: Unnur Svava Sverrisdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 868-2555, tölvupóstur unnur@allt.is.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.