Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 2ja herb. íbúð á 1. hæð í sjarmerandi steinhúsi að Þórsgötu 19 í Reykjavík. Sameiginlegur læstur garður með nýju hliði. Hgguleg viðarverönd þar sem sólar nýtur við á sumrin og á 3. hæð eru sameiginlegar svalir þar sem Hallgrímskirkja sést í öllu sínu veldi. Frábær staðsetning, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, sundhöll og verslanir sem og leikskóla, grunnskóla og skóla á háskólastigi.Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is Eignin skiptist í forstofu, stofu, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 47,5 m2.*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI TÓMRI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!Smelltu hér og þú færð söluyfirlit strax
Nánari lýsing:Forstofa og alrými er inn af snyrtilegri sameign.
Stofa er með stórum björtum gluggum sem snúa til suðurs. Einstaklega hátt er til lofts. Loftlistar og rósetta. Parket á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott og snýr gluggi þess út í afgirt port bakvið hús. Parket á gólfi.
Eldhús er með nýlegri svartri innréttingu á tveimur veggjum. Eikarborðplata. Vifta, helluborð og innbyggð uppþvottavél fylgir. Flotað gólf.
Baðherbergi er inn af eldhúsi. Baðkar með sturtu, svört innrétting undir handlaug, spegill og lýsing þar fyrir ofan. Bláar mósaíkflísar á veggjum og gólfi. Gluggi snýr út í harð.
Geymsla er sér undir tröppum í sameign.
Þvottahús er í sér bakhúsi. Á efri hæð þess er m.a. þurrkaðstaða. Mjög rúmgott og þrifalegt eins og þvottaaðstaðan á neðri hæðinni þar sem hver er með sínar vélar.
Garður er afar snyrtilegur, afgirtur. Bakatil er viðarverönd með hitalampa og garðhúsgögnum. Aðstaða er fyrir hjól innan við læst hlið í undirgöngum. Grasflötur og gangstéttar meðfram húsi og milli húss og þvottahúss.
Bílastæði eru í götunni. Ekið er einstaklega varlega um þessa hlykkjóttu götu. Hægt er að fá íbúakort hjá borginni því í götunni er gjaldskilda 2. Tveimur götum frá eru svo götur þar sem ekkert kostar að leggja bílum.
Íbúðin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin, m.a. rafmagn, pípulagnir, gólfefni, eldhúsinnrétting og baðherbergi.
Öflugt húsfélag og er greitt fyrir þrif í sameign úr sjóðnum.
Skv. upplýsingum frá eiganda, fyrri eiganda og húsfélagi hefur eignin fengið þessar endurbætur síðustu ár:2023 stigagangur málaður og frágangur í kringum raflagnir og rofa.
2020 múrviðgerðir í anddyri og málað. Ný svalahurð á sameiginlegum svölum á 3. hæð.
2019 þak og þakrennur yfirfarnar og þak málað. Snjóvörn sett á þak. Múrviðgerðir á húsi og þvottahúsi og bæði húsin máluð, ásamt útihurðum.
2017 nýr dyrasími í allar íbúðir og nýtt kerfi við útidyrahurð.
2015 múrviðgerðir inni í sameign á jarðhæð og málað.
2012 nýtt þakjárn á þvottahúsi og þvottahús málað að innan.
2009 voru gluggar víða bakatil endurnýjaðir.
2008 nýir gluggar að frama í allar íbúðir.
1994-1995 farið í skólplagnir.
Ath. að sum rýmin eru innréttuð með aðstoð gervigreindar.
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-