Fasteignaleitin
Skráð 24. apríl 2026

Snæfríðargata 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
105.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
88.500.000 kr.
Fermetraverð
838.863 kr./m2
Fasteignamat
77.250.000 kr.
Brunabótamat
61.500.000 kr.
HL
Hreiðar Levý Guðmundsson
löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2366568
Landnúmer
212797
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Upprunalegt, hús byggt árið 2018
Raflagnir
Upprunalegt, hús byggt árið 2018
Frárennslislagnir
Upprunalegt, hús byggt árið 2018
Gluggar / Gler
Upprunalegir, hús byggt árið 2018
Þak
Upprunalegt, hús byggt árið 2018
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
21.32
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Kvöð / kvaðir
kvaðir um lagnir og bílastæði. Sjá lóðarleigusamning.
Hreiðar Levý, lögg. fasteignasali og Betri Stofan Fasteignasala kynna afar fallega og bjarta 105,5fm, 4ja herbergja endaíbúð með á efri hæð með sérinngangi og stórum svölum til suðurs að Snæfríðargötu 3, 270 Mosfellsbær, nánar tiltekið eign merkt 02-03, fastanúmer 236-6568 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi og þvottahús inn af, 3 svefnherbergi, opið alrými með samliggjandi eldhúsi og stofu, stórar skjólríkar svalir auk sérgeymslu á jarðhæð. Þessi eign er alveg einstök þar sem breytt var frá upphaflegu plani hvað varðar innréttingar, tæki í eldhúsi, sérhönnuð lýsing og frágangur rafmagns í íbúð (aðgengilegt í vinnuhæð ofl). Sérsniðnar rúllugardínur í "boxi" frá Álnabæ fylgja með. Hér á sannarlega við að sjón er sögu ríkari. Frábær staðsetning í nýlegu og afar fjölskylduvænu hverfi í Mosfellsbæ. Leik- og grunnskóli í göngufjarlægð ásamt leikvöllum. Fallegar göngu- og hjólaleiðir í nágrenninu. Samgöngur til og frá svæðinu er góðar. 

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@betristofan.is

Eignin Snæfríðargata 3 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 236-6568, birt stærð 105.5 fm, þar af er sér geymsla eignar merkt 0107 er skráð 5,7fm.

Snæfríðargata 3 er fimm íbúða fjölbýlishús á tveimur hæðum hannað og teiknað af Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar arkitekts og var byggt af Byggingarfélaginu Bakka ehf. árið 2018.
Opið stigahús er á milli hæða með steyptum stiga og stál handriðum. Á jarðhæð er inntak, hjóla og vagnageymsla auk sér geymslur fyrir íbúðir.

Nánari lýsing:
Forstofa
: Flisalögð með góðum fata- og skóskáp sem nær upp í loft með rennihurð, önnur hurðin er spegill, gólfhiti er í forstofu.
Baðherbergi: Flísalagt með "walk in" sturtu með glervegg/hertu gleri, upphengdu salerni, baðinnréttingu neðri skápum, granít borðplötu og undirlímdum vask. Spegill með innbyggðri lýsingu fyrir ofan vask. Tæki frá Tengi. Þvottahús inn af baðherberginu. Gólfhiti í baðherbergi.
Þvottahús: Innrétting með neðri skúffum og efri skápum ásamt aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gólfhiti í þvottahúsi.
Alrými: Opið, bjart og fallegt rými með samliggjandi eldhúsi og stofu. Falleg gluggasetning með gluggum meðfram vesturhlið hússins og til suðurs.
EldhúsSérhannað fyrir þessa íbúð með hvítri innréttingu frá dansk gæðamerkinu HTH. Vönduð eldhústæki frá AEG (sérstaklega valin fyrir þessa eign). Spanhelluborð, tvær innfelldar uppþvottavélar, innbyggður ísskápur, blástursofn og sambyggður ofn og örbylgjuofn fylgja. Eyjan er stór og haganleg með góðu geymsluplássi (skúffum) og aðstöðu fyrir allt að 6 manns til að sitja við hana. Granítborðplata á eyju og innréttingu.
StofaRúmgóð, björt og opin með góða tengingu við eldhús. Gengið er útá stórar suðursvalir úr stofu.
Svalir: Útgengt út á stórar 15,2fm suðursvalir frá stofu. Inndregnar og því bæði skjólsælar en á sama tíma með glæsilegu útsýni.
Herbergi I: 9,3fm svefnherbergi með 2 földum fataskáp með rennihurð upp í loft. Nýtt í dag sem sjónvarpsherbergi. Innaf stofu með rennihurð. Léttur veggur, möguleiki á að opna og stækka stofu ef svo ber undir.
Svefnherbergi IIRúmgott með 2 földum fataskáp með rennihurðum. 12,9fm.
Svefnherbergi III: Rúmgott með 2 földum fataskáp með rennihurðum. 11fm.
Geymsla: 5,5 fm, sér geymsla á jarðhæð á sameignargangi.

Sameign: Sameiginleg hjóla og vagnageymsla á jarðhæð.
Lóð: Lóðin er frágengin og er malbikað að inngangi hússins. Merkt er sérstæði fyrir hverja íbúð auk gestastæða. Garður fyrir aftan hús er tyrfður

- Eldhús frá HTH (Ormsson)
- Eldhústæki frá AEG (Ormsson)

- Flísar frá Álfaborg
- Gólfefni og hurðir frá Birgisson
- Sólbekkir eru í allri íbúðinni
- Sjónvarps/internet tengingar eru allar uppá veggjum svo rýmin verða snúrulaus
- Instungur eru bæði á baði og þvottarhúsi í vinnuhæð


Sameign allra: Í sameign allra er inntaksrými (0108), gangur/hjóla&vagnageymsla (0109) stigahús (0110), opinn gangur/stigi (0204) og þak (0301) ásamt ytra byrði húss.

Veitur kostnaður
Rafmagn:
Sér rafmagnsmælar eru fyrir hverja séreign í húsinu. Sameign allra er á sér mæli og skiptist sameign allra. jafnt milli séreigna í húsinu. Mælar og inntak eru staðsett í inntaksrými merkt 0108 í
Hiti: Sameiginlegur mælir er fyrir hita í húsinu og skiptist kostnaður miðað við upphitað rúmmál séreigna auk jafnrar hlutdeildar í upphitun í sameign allra.

Lóð og bílastæði.
Heildarlóðin er 6.005,3m2 leigulóð í eigu Mosfellsbæjar, leigð til 75 ára frá 24.08.2007. Á lóðinni eru fimm matshlutar og skiptist lóðin hlutfallslega milli þeirra. 55 bílastæði eru á heilarlóðinni, þar af 5 bílastæði fyrir hreyfihamlaða.

Afar falleg, vel hönnuð og björt 4ja herbegja endaíbúð með stórum skjólríkum svölum til suðurs og afar fallegu útsýni út um stofu- og eldhúsglugga. Vinsæl staðsetning í nýlegu og fjölskylduvænu hverfi í Mosfellsbæ.

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 661- 6021, tölvupóstur hreidar@betristofan.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan Fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/01/202149.550.000 kr.56.500.000 kr.105.5 m2535.545 kr.
05/05/201818.600.000 kr.46.500.000 kr.105.5 m2440.758 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kóngsbakki 7
Skoða eignina Kóngsbakki 7
Kóngsbakki 7
109 Reykjavík
96.1 m2
Fjölbýlishús
43
675 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Hrafnshöfði 12
Bílskúr
Opið hús:29. apríl kl 16:30-17:00
Skoða eignina Hrafnshöfði 12
Hrafnshöfði 12
270 Mosfellsbær
165.7 m2
Raðhús
514
844 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Sörlaskjól 66
Opið hús:26. apríl kl 14:30-15:00
Skoða eignina Sörlaskjól 66
Sörlaskjól 66
107 Reykjavík
83.4 m2
Fjölbýlishús
311
706 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Skoða eignina Helluvað 19
Bílastæði
Opið hús:30. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Helluvað 19
Helluvað 19
110 Reykjavík
97.8 m2
Fjölbýlishús
312
792 þ.kr./m2
77.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin