Díana og Hulda hjá Fasteignasölunni Garður kynna:Fallega
fjögurra herbergja 117,8 fm íbúð á annarri hæð með útsýni. Skráð heildarstærð er 154,4 fm og þar af eru 36,6 fm stæði í bílakjallara með rafmagnstengli fyrir rafbíl. Geymsla 8,1 fm er staðsett á jarðhæð hússins ásamt hjóla- og vagnageymslu og hlutdeild í sameign.
Eignin er laus strax við kaupsamning.Eignin skiptist í: Forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Sérmerkt stæði í bílakjallara. Sér geymsla er í kjallara hússins ásamt hlutdeild í sameign. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla auk sameiginlegrar útigeymslu.
Sækja söluyfirlitNánari lýsing: Forstofa: Stór og rúmgóð forstofa með skáp og nýlegu Pergo parketi sem leiðir inn í stofu og herbergjagang.
Eldhús: Þýsk sérsmíðuð innrétting frá Innlifun ehf, Dark Beton korkparket er á gólfinu frá Þ.Þorgrímsson & co, auðvelt er að þrifa.
Stofa: Opin inn í borðstofu, Pergo parket. Björt og falleg með góðu útsýni til suðurs.
Borðstofa: Björt og falleg með góðu útsýni til suðurs. Suður svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott með gott skápapláss, parket.
Herbergi 1: Skápur, parket.
Herbergi 2: Skápur, parket.
Baðherbergi: Nýleg innrétting með handlaug. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. wc og baðkar með sturtuaðstöðu.
Sameiginlegur garður er fyrir framan húsið með leiktækjum það er einnig stór grasflötur fyrir aftan húsið.
Umskiptum á þaki er nýlokið, hafa þær framkvæmdir verið greiddar að fullu.Nýjir ofnar eru í stofunni. Búið að skipta út innihurðum sem eru frá Byko, sérsmíðaðir þröskuldar. Nýjir lekaliðar og rafmagn dregið í að hluta. Í bílakjallara er stæði með rafmagnstengli og góð aðstaða til að þvo bílinn.
Móða er farin að myndast í nokkrum gluggum.
Seljahverfið er sérlega fjölskylduvænt hverfi og stutt í alla þjónustu. Tveir leikskólar og grunnskólar í göngufæri. Stutt er á íþróttasvæði ÍR og Leiknis. Verslanir og bókasafn í göngufæri ásamt ýmissi þjónustu í Mjódd sem einnig er skammt undan. Auk þess er stutt að fara á útivistarsvæði í Elliðaárdal, og á svæðinu neðan Seljakirkju.
NÁNARI UPPLÝSINGAR:Díana Arnfjörð löggiltur fasteignasali
diana@fastgardur.is s: 895 9899
Instagram: dianaarnfjordlfs
Hulda Ósk löggiltur fasteignasali
hulda@fastgardur.is s: 771 2528
Instagram: huldaosklfs
Hafðu samband ef þú vilt frekari upplýsingar eða ert með eign sem við getum aðstoðað þig við sölumeðferð