Lind fasteignasala / Tara Sif Birgisdóttir lögg. fasteignasali kynnir einstaklega sjarmerandi og vel skipulagt 201,3 fm 3ja hæða einbýlishús í hjarta Vesturbæjar, ásamt 24,2 fm bílskúr sem breytt hefur verið í stúdíóíbúð við Suðurgötu 100 í 102 Reykjavík.
Miklar endurbætur og viðhald hefur átt sér stað síðustu ár, m.a. stækkun á húsinu. Frábær staðsetning, en miðbærinn, Háskóli Íslands, Ægissíðan o.fl. er í göngufjarlægð ásamt allri helstu þjónustu.
Eignin hefur verið í útleigu undanfarin ár og ber góðar leigutekjur.
*** Seljandi skoðar uppítöku á öðrum eignum. ***
Nánari lýsing eignar:
1.Hæð
Forstofa: Parket á gólfi, rúmgóður fataskápur.
Gestasnyrting: Innaf forstofu, flísar á gólfi, upphengt salerni, innrétting og hillur.
Eldhús: Parket á gólfi, rúmgott með góðu vinnuplássi, eyja með granít borðplötu og helluborði, háfur, ofn í vinnuhæð, búrskápur, gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp.
Stofa/borðstofa: Bjart og fallegt rými, útgengt um tvöfalda franska svalahurð á viðarverönd. Nú er herbergi þar sem áður var borðstofa. (auðvelt að breyta til baka).
Svefnerbergi 1: Parket á gólfi, fataskápur. Var áður borðstofa, (auðvelt að breyta til baka).
2.Hæð
Hjónasvíta: Á vinstri hönd þegar komið er upp stiga. Rúmgóð, parket á gólfi, "walk in" fataskápur, stór opnanlegur Velux gluggi með loftunarstillingum, útgengt um svalahurð á bílskúrsþak.
Baðherbergi: Innaf hjónasvítu, flísar á gólfi og veggjum, sturta, baðkar, upphengt salerni og opnanlegir gluggar.
Herbergi 2: Rúmgott, parket á gólfi, tveir lausir fataskápar. Stórir opnanlegir Velux gluggar með loftunarstillingum.
Kjallari:
Geymsla: Undir stiga á hægri hönd þegar komið er niður.
Herbergi 3: Rúmgott á hægri hönd. Eldra eikarparket á gólfi, innbyggður stór fataskápur.
Herbergi 4: Á hægri hönd þegar komið er niður stiga. Eldra eikarparket á gólfi.
Herbergi 5: Á vinstri hönd þegar gengið er inn flísalagðan gang, eldra eikarparket á gólfi.
Herbergi 6: Á vinstri hönd á gangi, góður innbyggður fataskápur, eldra eikarparket á gólfi.
Baðherbergi/þvottahús: Flísalagt í hólf og gólf, gott skápapláss / lagnagrind er að hluta til inni í innréttingu, þvottavél og þurrkari inni í innréttingu sem hægt er að loka af með rennihurð, sturta, opnanlegur gluggi og lofttúða.
- Á herbergja gangi í kjallara er annar inngangur inn í húsið, svo hægt væri að útbúa aðra íbúð í kjallaranum með sérinngangi.
Bílskúr:
Bílskúr var breytt í fullbúna studíóíbúð árið 2021. Gólf var flotað, parket sett á alrými/eldhús, baðherbergið flísað á gólfi og í sturtu. Walk in sturta, upphengt salerni, innrétting, ásamt plássi fyrir þvottavél. Vélræn lofttúða er inni á baði. Hvít eldhúsinnrétting Góð lofthæð og geymslurými að hluta. Sérinngangur er inn í bílskúrinn ásamt stórum opnanlegum glugga.
Viðhald sl. ár skv. seljanda:
2011 Rishæð smíðuð ofan á húsið, þ.a.l. þak og gluggar á efstu hæð frá 2011
2019 Skipt um ofnalagnir í kjallara
2020 Klæðning og gluggar málaðir
2021 Skipt var um þrýsijafnara og öyggisventil í lagnagrind
2021 Bílskúr breytt í fullbúna stúdíóíbúð
2022 Bílskúrsþak málað
2022 Skipt um blöndunartæki í báðum sturtum
2022 Skipt um blöndunartæki á gestasalerni, baðherbergi í kjallara og eldhúsi
2024 Kjallari sprunguviðgerður, múraður og filteraður
2025 Gluggi í kvisti að framan endurnýjaður ásamt klæðningu
2026 Kjallari sílanborinn og málaður
Allar upplýsingar um eignina veitir Tara Sif Birgisdóttir í síma 847 8584 / tara@fastlind.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr.3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.