SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR
TORG FASTEIGNASALA KYNNIR Í SÖLU: Falleg, 67,8 fm, tveggja herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð ásamt geymslu í Áslandinu, Hfj. Eignin skiptist í anddyrisgang, alrými með eldhúsi og stofu, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu í sameign. Gengið er út á rúmgóðar 6,3 fm svalir til vesturs frá stofu. Hjóla- og vagnageymsla í sameign. Afhending er eigi síðar en í byrjun júní. Einstaklega góð staðsetning, grunn- og leikskóli eru í göngufæri. Stutt er í fjölbreytta verslun og þjónustu á Völlunum. Nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir lögfræðingur og löggiltur fasteignasali í síma 690 4966 eða matthildur@fstorg.isNánari lýsing: Gengið inn í anddyri með steinflísum á gólfi.
Eldhús er með viðarinnréttingu með efri og neðri skápum og ljósri borðplötu.
Stofa er björt og með einstaklega fallegu útsýni og útgengi á rúmgóðar svalir til vesturs.
Svefnherbergi er rúmgott og með fataskáp.
Baðherbergi er með ljósum flísum í hólf og gólf og sturtuklefa, hvítur skápur undir vaski og spegill.
Rúmgott þvottahús er innan íbúðar, með innréttingu og vaski.
Gólfefni íbúðar eru eikarparket nema á baðherbergi, þvottahúsi og anddyri þar sem eru ljósar flísar.
Skipt var um glugga og svalahurð fyrir örfáum árum.
Íbúðinni fylgir sér geymsla í sameign ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.
Stutt er í alla helstu þjónustu, verslun, skóla, leikskóla og falleg náttúra allt í kring.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3.800,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.