Opið hús:08. feb. kl 14:00-14:30
Skráð 5. feb. 2026

Langalína 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
106.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
88.900.000 kr.
Fermetraverð
833.177 kr./m2
Fasteignamat
90.950.000 kr.
Brunabótamat
60.170.000 kr.
Mynd af Óskar H. Bjarnasen
Óskar H. Bjarnasen
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2008
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2072132
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunarlegt
Raflagnir
Upprunarlegt
Frárennslislagnir
Upprunarlegt
Gluggar / Gler
Upprunarlegt
Þak
Upprunarlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Lóð
1,673
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Á aðalfundi 2025 var stjórn meðal annars veitt heimild til að afla tilboða í að mála geymsluganga, anddyri og sorpskýli. Einnig var rætt um að skoða leka í bílakjallara. Sjá nánar í aðalfundargerð 06.03.25. Sumarið 2025 var umræddur leki skoðaður og var gróflega áætlaður kostnaður vegna viðgerðar á bilinu 1,2-1,5 Mkr fyrir allt húsið, sjá nánar minnisblað skoðunarmanns dags.18.06.2025. Inneign á reikningum húsfélagsins þann 16.01.2025 voru 4.903.202 kr. (framkvæmdarsjóður) og 2.779.679 kr. (hússjóður). Eignin á 1,673% hlut í húsinu.  
Gallar
Blástur í bakaraofni er bilaður. Fataskápur í barnaherbergið er ekki í herberginu í dag en er til í geymslu.
Valhöll fasteignasala kynnir: Fallega og bjarta 3ja herbergja íbúð á 1.hæð (hálf hæð upp) í góðu lyftuhúsi ásamt stæði í lokaðri bílageymslu í Sjálandi Garðabæjar. Eignin er vel skipulögð og er alrýmið sérstakleg bjart með fjölda gólfsíðra glugga á tveimur hliðum og útgengt um franskar hurðar út á stórar vestur svalir. Tvennar svalir eru á íbúðinni aðrar út frá stofu og hinar út frá hjónaherbergi. Gólfhiti er í eigninni. Allar innréttingar eru frá Brúnás úr eik og gólfefni eru eikarparket og flísar. Bæði svefnherbergin eru mjög rúmgóð með góðum fataskápum sem ná alveg upp í loft. Þvottaherbergi er innan íbúðar. Húsvörður er í húsinu.

Sjálandshverfið er sértaklega vel staðsett, öll þjónusta í næsta nágrenni. Falleg náttúra og gönguleiðir eru allt í kring, þ.m.t ylströndin í 5 mínútu göngufæri.


Nánari upplýsingar veitir: Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögmaður í síma 691-1931 eða á netfanginu oskar@valholl.is
 
Eignin er 106,7 fm að stærð og þar af er 7,9 fm geymsla.

Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í forstofu með ljósum flísum á gólfi og góðum tvöföldum eikarfataskáp sem nær uppí loft.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum á veggjum og ljósum flísum á gólfi. Eikar innrétting er undir vaski og við hlið spegils. Upphengt salerni, Walk-in sturta og handklæðaofn.
Eldhús: Eldhúsið er mjög rúmgott og vel útbúið með fallegri eikar innréttingu. Innréttingin er á einum vegg með efri og neðri skápum. Innbyggð uppþvottavél. Eikarparket er á gólfi. Eldhúsið er einstaklega bjart með stórum gólfsíðum gluggum. Mikið pláss er í eldhúsinu til að hafa eldhús/borðstofuborð í rýminu.
Stofa: stofan er mjög rúmgóð. Margir stórir gluggar eru í stofunni sem hleypir fallegri birtu inn í rýmið. Eikarparket er á gólfi. Útgengt er frá stofunni á stórar vestur svalir.
Svefnherbergi 1 og 2: Svefnherbergi eignarinnar eru 2 bæði mjög rúmgóð með eikarparketi á gólfi og góðum fataskápum. Útgengt er frá hjónaherberginu á auka svalir íbúðarinnar.
Þvottaherbergi: Þvottaherbergið er innan íbúðar, innaf eldhúsi. Flísar eru á gólfi.
Geymsla: í sameign er sérgeymsla sem fylgir eigninni sem telur 7,9 fm. Lofthæð geymslunnar er mjög mikil og auðvelt væri að setja upp milliloft.
Í kjallara hússins eru hjóla- og vagnageymslur.
Stæði í lokaðri bílageymslu.


Nánari upplýsingar veitir: Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögmaður í síma 691-1931 eða á netfanginu oskar@valholl.is
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
10/06/201637.050.000 kr.36.500.000 kr.106.7 m2342.080 kr.
27/10/201013.600.000 kr.24.000.000 kr.106.7 m2224.929 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2008
Fasteignanúmer
2072132
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B3
Númer eignar
3
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.220.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lautargata 5 íb. 302
Lautargata 5 íb. 302
210 Garðabær
88 m2
Fjölbýlishús
3
994 þ.kr./m2
87.500.000 kr.
Skoða eignina Holtsvegur 10
Opið hús:11. feb. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Holtsvegur 10
Holtsvegur 10
210 Garðabær
100.7 m2
Fjölbýlishús
312
873 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 10 íb305
Eskiás 10 íb305
210 Garðabær
87.2 m2
Fjölbýlishús
32
997 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 6
Skoða eignina Eskiás 6
Eskiás 6
210 Garðabær
101.2 m2
Fjölbýlishús
312
888 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin