Fasteignaleitin
Skráð 5. nóv. 2026

Víðimelur 32

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
55.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
49.900.000 kr.
Fermetraverð
894.265 kr./m2
Brunabótamat
30.000.000 kr.
Byggt 1939
Kjallari
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20269555
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Eignamiðlun kynnir:

Þriggja herbergja 55,8 fm kjallaraíbúð í mikið endurnýjuðu húsi við Víðimel 32 í Vesturbænum. Um er að ræða steinsteypt hús byggt árið 1939. Mjög góð fyrstu kaup. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og tómstundir. M.a. Melaskóla, Hagaskóla, Vesturbæjarlaug, Kaffi Vest, Háskóla Íslands og Háskólabíó. Góðar gönguleiðir eru í hverfinu.

**Sækja söluyfirlit**


Nánari lýsing:
Kjallaraíbúðin er skráð 55,8 fm og samkvæmt teikningum samanstendur hún af baðherbergi, eldhúsi með eldri innréttingu, stofu og tveimur svefnherbergjum. Sameiginlegt þvottahús er í sameign í kjallara. Sameiginlegur inngangur er á jarðhæð. Aðgengi að baðherbergi íbúðar er frá sameign en með nokkuð einföldum hætti væri hægt að opna inn í íbúðina. Húsið hefur hlotið mikið og gott viðhald en íbúðin sjálf þarfnast einhverra endurbóta.

Framkvæmdir og viðhald
Húsið var endursteinað, gluggar endurnýjaðir og ný stétt sett í kringum húsið á árunum 2024-2025. Einnig voru gerðar endurbætur á frárennsliskerfi og snjóbræðslukerfi komið fyrir. Nýja frárennsliskerfið þjónar öllu húsinu að undanskildu salerni og eldhúsi í kjallara. Lagnaaðstaða er þó til staðar fyrir tengingu þess við nýja kerfið. Endurnýjað frárennsliskerfi nær út í gangstétt.  Auk þess voru nýjar hitalagnir lagðar árið 2020. Hitalagnir í lagnarými í kjallara voru endurnýjaðar og komið fyrir varmaskiptakerfi fyrir heitt neysluvatn á öllum hæðum og útirýmum.

Nánari upplýsingar veitir:
Lilja Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali, sími: 649-3868 / lilja@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (11)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eiðistorg 3
Skoða eignina Eiðistorg 3
Eiðistorg 3
170 Seltjarnarnes
61,1 m2
Fjölbýlishús
211
964 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Skoða eignina Bakkagerði 7
Skoða eignina Bakkagerði 7
Bakkagerði 7
108 Reykjavík
57,7 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
986 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Skoða eignina Reykjastræti 7
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Reykjastræti 7
Reykjastræti 7
101 Reykjavík
102,3 m2
Fjölbýlishús
211
1320 þ.kr./m2
135.000.000 kr.
Skoða eignina Miðbraut 24
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Miðbraut 24
Miðbraut 24
170 Seltjarnarnes
197,9 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
523
752 þ.kr./m2
148.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin