RE/MAX kynnr: Bjarta og rúmgóða 4ja herbergja íbúð á 1 hæð með suðurverönd með skjólveggjum við Háholt 14, Hafnarfirði. Fallegt útsýni yfir fjörðinn fagra og höfnina.
Nýlega hafa innihurðir, parket og innrétting á baði verið endurnýjað. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin 109,8 fm, þar af geymsla 4,7 fm. Falleg eign sem vert er að skoða.Allar nánari uppls gefur Páll lögg, fasteignasali í síma 861-9300 eða pallb@remax.is og Úlfar Hrafn lögg,fasteignasali í síma 6238747 eða ulfar@remax.isNánari lýsing:Forstofa: Rúmgóð með parketi á gólfi.
Eldhús: Með hvítmálaðri innréttingu og parketi á gólfi,tengi fyrir uppþvottavél, helluborð og háfur yfir.
Stofa/Borðstofa: Björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt er úr stofu á viðarverönd með skjólveggjum..
Svefnherbergi: Mjög rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergin eru tvö með parketi á gólfiþ
Baðherbergi: með flísum í hólf og gólf, nýleg baðinnrétting með vaski og efriskáp.Sturtuklefi.
Sér geymsla: Er staðsett í kjallara, 4,7 fm.
Hjóla og vagnageymsla: Er í sameign á jarðhæð.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því REMAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.