Fasteignaleitin
Skráð 6. nóv. 2025

Kvíaholt 1A

Nýbygging • ParhúsVesturland/Borgarnes-310
134.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
77.900.000 kr.
Fermetraverð
579.613 kr./m2
Fasteignamat
7.920.000 kr.
Mynd af Sigþór Bragason
Sigþór Bragason
Löggiltur fasteignasali
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2536973
Landnúmer
238840
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Inngangur
Sérinngangur
Gimli fasteignasala kynnir: Glæsilegt nýtt fullbúið steypt parhús á einni hæð við Kvíaholt 1A. Stofa og eldhús eru samliggjandi í rúmgóðu og björtu rými með gólfsíðum gluggum og útgengi í garð. Þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Einstaklega vel skipulagt og vel staðsett 134,4 m² hús með bílskúr, Íbúðahluti 105,4 m² og bílskúr 29,0 m. Húsið er byggt af vönduðum byggingaraðila þar sem ekkert er sparað til í hönnun og efnisvali. Góð lofthæð er í húsinu og innfelld lýsing að hluta. Eign sem vert er að skoða.

Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum tvöföldum fataskáp.
Stofa og eldhús eru samliggjandi í stóru björtu rými með gólfsíðum gluggum og útgengt í garð. Eldúsinnrétting með eyju frá HTH.
Hjónaherbergi er á sér gangi með baðherbergi. Herbergið er rúmgott og með góðum skápum, baðherbergi með þreplausri sturtu og góðri innréttingu. Af baðherbergi er útgengt út í garð þar sem gert er ráð fyrir heitum potti.
Tvö góð herbergi með tvöföldum fataskáp.
Þvottahús með góðri innréttingu og skolvaski. Í gegnum þvottahús er gengið í bílskúr.
Bílskúrinn er 29.0 m² og er geymsla (4,4 m2) teiknuð í enda hans.

Skjólsæll bakgarður sem snýr til suðurs og er umlukinn klettum.

Nánari upplýsingar veita Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse, löggiltur fasteigna- og skipasali í síma 7927576, gudmunda@gimli.is og Sigþór Bragason, löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787, sb@gimli.is



Húsið er byggt úr forsteyptum einingum frá Steypustöðinni í Borgarnesi
Góð lofthæð er í húsinu, minnst 280cm og mest 300cm.
Gert er ráð fyrir innfelldri lýsingu í sameiginlegum rýmum og hjónaherbergi. Lýsingarhönnun Rafpro ehf.

Þetta er einstaklega vel skipulagt hús á einni hæð byggt af vönduðum byggingaraðila þar sem ekkert sparað til í hönnun og efnisvali.
Borgarnes er blómlegur bær með mikla þjónustu, fjölmargar verslanir og veitingastaðir eru í Borgarnesi. Tveir leikskólar, góður grunnskóli og menntaskóli og einnig eru tveir skólar á háskólastigi. Glæsileg íþróttastaða með innilaug, útilaug með rennibrautum, íþróttahús og mikil og falleg útiaðstaða með fótbolta og frjálsíþróttavöllum. Golfvöllurinn að Hamri er með fallegir völlum landsins og mikið í hann lagt. Gott göngustígakerfi er í bænum sem liggur meðal annars með stöndinni. Falleg og óspillt náttúran í næsta nágrenni.
Innan við klukkustundar akstur er til Reykjavíkur frá Borgarnesi.

Skilalýsing:
Húsið skilast á byggingastigi 4, fullbúið að innan og utan án gólfefna nema á votrýmum sem eru flísalögð.
Húsið er tilbúið til afhendinga í ágúst skv eftirfarandi skilalýsingu.

Birt flatarmál hússins er samkvæmt skráningatöflu hönnuða er 134,4m2, þar af er bílskúr 29m2
Burðarvirki hússins er úr forsteyptum samlokueiningum frá Steypustöðinni. Þakplata er steypt með vatnshalla að niðurföllum.
Byggingaraðili – Eining fasteignir ehf.
Hönnun: Valhönnun Stoð ehf – Burðarþols- og lagnahönnun Rafpro - Raflagnahönnun
Verktakar Eining Verk ehf – Burðarvirki og smíðavinna Rafpro ehf – Raflagnahönnun og raflögn Heild ehf – Pípulagnir Þaklagnir ehf – Þakfrágangur

Frágangur utan- og innanhúss
Útveggir: Útveggir eru úr forsteyptum samlokueiningum frá Steypustöðinni. Innveggir: Innveggir eru annarsvegar steyptir og hinsvegar léttir. Uppbygging léttra veggja, tvöfalt gips eða krossviður og gips þar sem innréttingar eru staðsettar, og einangrun í veggjum. Skiptingu steyptra og léttra veggja má sjá á teikningu arkitekts. Allir veggir verða spartslaðir og málaðir í ljósum lit að innan. Húsið verður málað í ljósum lit að utan.

Gluggar og útihurðir: Gluggar og útihurðar koma eru ál/timbur og koma frá Gluggatækni og framleiddir af Arlanga fyrir Íslenskar aðstæður og kröfur. Allar hurðar eru með þriggja punkta læsingum og hurðir út úr eldhúsi og baðherbergjum eru með bremsuarmi. Opnanleg fög eru með öryggislæsingu og hægt að læsa þeim með lítilli rifu fyrir gott loftflæði. Bílskúrshurðir eru af vandaðri gerð frá Wisniowski og eru með rafmagnsopnun. Litur – Dökk grátt að utan, hvítt að innan.

Þak: Þak er viðsnúið, steypt þakplata með ísteyptum vatnshalla að niðurföllum. Heilsoðið tvöfalt lag af asphaltpappa á þakflöt og kanta. Drendúkur ofan á þakpappa, þar ofaná kemur 200mm þykk XPS einangrun, acryldúkur og sérstök þakmöl frá Steypustöðinni. Blikkhattur, dökkgrár, kemur ofaná útveggi.

Lóð: Bílaplan verður með frágenginni snjóbræðslu á lokuðu kerfi og hellulagt skv teikningum
arkitekts, steypt sorptunnuskýli frá Steypustöðinni. Að öðru leiti verður lóðin þökulögð en búið er að jarðvegsskipta undir afnotareit á baklóð.

Rafmagn: Rafmagn skilast fullfrágengið. Innfelld lýsing verður frá Plejd, einfalt að forrita og stýra með appi í síma. Önnur lýsing verða LED kúplar. Innlagnaefni verður hvítt Berker S1 eða sambærilegt. Kaupendur sjá um að taka inn ljósleiðara. Nettenglar í herbergjum verða tengdir með köplum í smáspennutöflu en kaupendur skaffa þann búnað sem þarf til að tengja netkapla (switch og router). Gert er ráð fyrir hleðslustöð á húsinu en kaupendur sjá um uppsetningu og tengingu. Útilýsing og tenglar verða frágengin. Það eru ídráttarrör fyrir rafmagn frá bílskúr og í baklóð. Gólfhiti er í öllum rýmum, steyptur í plötu. Sett verður ein stýring á gólfhitagrind en ekki verða settar upp stýringar fyrir hvert rými.
Loft: Loftplata er steypt og einangruð ofan á þak. Að innan eru loft spörtsluð og máluð í ljósum lit.

Gólf: Gólf baðherbergis og þvottahúss verður flísalagt. Önnur gólf skilast flotuð.

Baðherbergi: Veggir baðherbergis eru flísalagðir að hluta með ljósum 60x60cm flísum Gólf baðherbergis er flísalagt með ljósum 60x60cm flísum Vegghengt salerni, sturta með innangengi og hurð af baðherbergi út á baklóð.

Innréttingar: Allar innréttingar eru frá HTH / Ormsson. Innréttingar eru í ljósum beige lit nema efriskápar í eldhúsi sem eru með dökkri viðaráferð. Borðplötur í eldhúsi eru ljós gráar plastlagðar en á baðherbergi er acryl borðplata með ísteyptum vaski. Í eldhúsi er innrétting á vegg og eyja. Innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur, ofn í vinnuhæð og gott skúffupláss. Á baðherbergi er 120cm breið innrétting með acryl borðplötu og ísteyptum vaski. Spegill fyrir ofan innréttingu. Í þvottahúsi er vaskaskápur, vaskur og vinnuborð. Góðir fataskápar í herbergjum og anddyri með skúffugrindum og slám.

Innihurðar: Hvítar yfirfelldar frá Birgisson eða sambærilegt. Húnar verða stállitaðir.

Heimilistæki: Öll heimilistæki verða af gerðinni AEG frá Ormsson, ofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur.

Nánari upplýsingar veitir Sigþór Bragason, Löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti á sb@gimli.is Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse, Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 792-7576

Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 43 ára starfsafmæli á árinu 2025. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli gerir betur...

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
 
Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 43 ára starfsafmæli á árinu 2025. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli gerir betur...

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
29 m2
Fasteignanúmer
2536973
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (4)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Miðfellsvegur 2
Skoða eignina Miðfellsvegur 2
Miðfellsvegur 2
806 Selfoss
107.7 m2
Sumarhús
423
604 þ.kr./m2
65.000.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 7
Opið hús:04. apríl kl 13:00-13:30
Skoða eignina Áshamar 7
Áshamar 7
221 Hafnarfjörður
95.6 m2
Fjölbýlishús
312
783 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Klapparhlíð 30
Opið hús:09. apríl kl 16:30-17:00
Skoða eignina Klapparhlíð 30
Klapparhlíð 30
270 Mosfellsbær
112.6 m2
Fjölbýlishús
514
798 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 17
Skoða eignina Vetrarbraut 17
Vetrarbraut 17
815 Þorlákshöfn
95.9 m2
Raðhús
413
750 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin