Eignasala.is kynnir í einkasölu:
Erlutjörn 5, 260 Reykjanesbæ
Um er að ræða 4-5 herbergja einbýlishús ásamt bílskúr í byggt árið 2005. Eignin skiptist í forstofu, forstofusalerni, stofu og borðstofu, sjónvarpshol, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þvottahús, geymslu/herbergi og bílskúr.
Birt stærð eignar er 204,4m2, þar af er íbúð skráð 172,0m2 og bílskúr 32,4m2
Nánari lýsing eignar
Forstofa er flísalögð með góðum fataskáp
Forstofusalerni er flísalagt á gólfi.
Eldhús er flísalagt með fallega innréttingu, ofn gashelluborði og viftu. eldhús er opið inní stofu.
Stofa er parketlögð að stærstum hluta, en flísar í sólskála þar sem er útgönguhurðir á lóð þar búið er að gera tvo sólpalla, annar með heitum potti.
Baðherbergi er flísalagt með upphengdu salerni, góðri innréttingu, hornbaðkari og sturtuklefa.
Svefnherbergin eru öll með góðum fataskápum og plastparketiþ
Sjónvarpshol er parketlagt.
Innangengt er úr anddyri og eldhúsi í þvottahús, sem er með góðum innréttingum og skápum og gólf flísalögð.
Geymsla/herbergi innaf skúr er flísalögð
Gólfhiti er í allri eigninni
Lóð er tyrft og innkeyrsla hellulögð með hitalögn að hluta til.
Geymsluskúr á lóð ca. 12m2.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Hafnargötu 90a í síma 420-6070 julli@eignasala.is og eignasala@eignasala.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.
Júlíus M. Steinþórsson 899-0555 Jóhannes Ellertsson 864-9677 Bjarni Fannar Bjarnason 773-0397
Löggiltur fasteignasali Löggiltur fasteignasali Aðstoðamaður fasteignasala