Fasteignaleitin
Skráð 17. apríl 2025
Deila eign
Deila

Guðrúnartún 1c

Nýbygging • RaðhúsSuðurland/Hella-850
99 m2
3 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
62.500.000 kr.
Fermetraverð
631.313 kr./m2
Fasteignamat
4.750.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2024
Þvottahús
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2534749
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
skv skilalýsingu
Raflagnir
skv skilalýsingu
Frárennslislagnir
skv skilalýsingu
Gluggar / Gler
skv skilalýsingu
Þak
skv skilalýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
skv skilalýsingu
Upphitun
skv skilalýsingu
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
1 - Samþykkt
Kvöð / kvaðir
ATH tölvuteiknaðar myndir eru ekki raun myndir um eignina. Bara til betri glöggunar og geta verið rangar. Farið er alfarið eftir raun teikningum eignar við sölu eignar
ALLT fasteignasala sími 560-5500 kynnir í einkasölu Guðrúnartún 1 C, 850 Hella, nánar tiltekið raðhús í byggingu að Guðrúnartúni 1 á Hellu í Rangárþingi ytra með fjórum raðhúsaíbúðum.
Guðrúnartún 1a, 1b, 1c, 1d. 

Möguleiki er að fá vaxtalaust lán til 48 mánaða fyrir allt að 5% af kaupverði.

Afhending á eign er við kaupsamning


Guðrúnartún 1 er 3-4ja herbergja íbúðir í 4ra íbúða raðhúsi á einni hæð sem er í byggingu. Birt stærð hverrar eignar er 99,0 m2.

Skipulag íbúðar er rúmgott anddyri, með tveimur svefnherbergjum ásamt skráðri 8,5 fm geymslu með glugga sem getur nýst sem íverurými, eldhúsi og stofu/borðstofu í rúmgóðu opnu rými, baðherbergi, þvottahúsi.
Burðarvirki hússins er úr timbri. Útveggir eru klæddir að utan með grárri báruklæðningu (Ral 9006) og timburklæðningu í bland.

Íbúðirnar eru afhentar á byggingarstigi B4, fullgerðar eignir, ásamt lóð tyrfð og bílastæði hellulögð eða steypt og snjóbræðslulögnum og húsið tilbúið að utan ásamt sorptunniskýli. Sjá skilalýsingu seljanda.

Staðsetning eignarinnar er innst í bænum á friðsælum stað með útsýni til Rangá og við ósnorta náttúru og gott útsýni. Eignin henntar fyrir eldriborgara þar sem hjúkrunarheimilið Lundur er í göngufæri frá íbúðunum.
Einnig er þetta góð fyrstukaup, eða sem annað heimili.

Sjá Dronamyndband með því að smella HÉR

Kaupandi greiðir skipulagsgjald (0,3% af endanlegu brunabótamati) þegar það verður lagt á.
Gatnagerðargjöld eru að fullu greidd, þ.a.s. byggingarlóð, gatnagerð, byggingarleyfisgjald og stofngjald holræsa og vatnsveitu. Inntaksgjöld rafmagns og hita eru greidd.

Guðrúnartún 1a og 1d, endaraðhús

Ásett verð kr. 63.800.000 - Fullgerð eign B4

Guðrúnartún 1b og 1c, miðjuraðhús.

Ásett verð kr. 62.500.000 - Fullgerð eign B4

Nánari upplýsingar og gögn sbr teikningar og skilalýsingar veita:

Helgi Bjartur Þorvarðarson
Löggiltur fasteignasali,
í síma 7702023,
Netfang helgi@allt.is

Páll Þorbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Síma 560-5501
Netfang pall@allt.is


Byggingalýsing: 

Útveggir: 
Útveggir eru timburveggir, einangraðir með 150mm þéttull. Veggir eru klæddir að utan með ljósri báruklæðningu og timburklæðningu í bland. Að innan eru veggir klæddir með gifsklæðningu.
Þak: 
Þak er timburþak, byggt upp með kraftsperrum. Borðaklæðning, þakpappi og ysta klæðning er aluzink báruklæðning. Loft er neðan í sperrum að innan og klætt að neðan með sléttri gifsklæðningu. Þakkantur er ljós að lit og þakhalli er 18°. 
Gluggar og hurðir: 
Gluggar og hurðir eru timburgluggar, hvítir/ljósir að lit. 
Gólf:
Botnplata er járnbent steinsteypa, staðsteypt á burðarhæfa grús. 
Innveggir og innihurðir:
Léttir veggir eru gifsveggir. Allar innihurðir skulu vera með 80cm hindrunarlausri umferðarbreidd og hæð upp á 200cm.

Sorp:
Sorptunnuskýli eru fyrir hverja íbúð. Gert er ráð fyrir þremur sorptunnum fyrir hverja íbúð m.t.t. flokkunar á sorpi. Sorptunnuskýli eru staðsett við bílastæði.
Eldvarnir:
Eldvarnarveggur milli íbúða skal vera EI-90 tvöfaldur 2* 70*45mm timburgrind (veggur) með 70mm steinullareinangrun sem er fest með vír skv. leiðbeiningarblaði HMS. Eldvarnarveggir eru klæddir með tvöföldu gifsi hvoru megin. Íbúiðin er sjálfstætt brunahólf.

Lóð: 
Skilast frágengin skv skilalýsingu
Lagnir og lagnaleiðir:
Lagnainntök eru í þvottahúsi í hverri íbúð. Upphitun er hitaveita. Hitakerfi er ísteyptur gólfhiti. Neysluvatnslagnir eru almennt ísteyptar rör í rör kerfi og einnig í innveggjum þar sem það á við.
Raflagnir eru í raflagnagrind útveggja og innveggjagrindum. Loftræsting lokaðra rýma skal vera með vélrænni loftræstingu um þak eða gegnum útveggi.
Algild hönnun:
Íbúðum er auðvelt að breyta m.t.t. aðgengis og skv. þörfum hreyfihamlaðra og sjónskertra. Minnstu breytinguna þyrfti að gera á miðjuíbúð. Þröskuldar hurða eru lágir og miðað er við að innihurðir séu almennt þröskuldslausar. Aðkoma inn í íbúðir um aðalhurð er hægt að útbúa með rampi. Baðherbergi ná lágmarksstærð og er miðað við innfellda sturtu.

Hella er staðsett á Suðurlandi, um 94 km frá höfuðborginni Reykjavík. Um klukkustunda aksturs fjarlægð. Það er staðsett meðfram Ytri-Rangá og þjónar sem miðstöð fyrir ferðalanga sem skoða náttúru Íslands eins og Heklu eldfjallið í nágrenninu, Landmannalaugar og Gullna hringinn. Töluverður landbúnaður og hestamenska er í og við Hellu. Hella er oft notuð sem viðkomustaður fyrir þá sem heimsækja hálendi Íslands, fossa svæðisins, þar á meðal Seljalandsfoss og Skógafoss, sem og jökla eins og Eyjafjallajökul og Mýrdalsjökul. Góð grunnþjónustu eins og gisting, verslanir, veitingastaði, sundlaug og leiksvæði. 

 ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 56.000 auk vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
ALLT FASTEIGNIR ehf
http://www.allt.is

Svæðisupplýsingar

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Guðrúnartún 1B
Guðrúnartún 1B
850 Hella
99 m2
Raðhús
313
631 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Skoða eignina Guðrúnartún 1a
Guðrúnartún 1a
850 Hella
99 m2
Raðhús
313
644 þ.kr./m2
63.800.000 kr.
Skoða eignina Guðrúnartún 1D
Guðrúnartún 1D
850 Hella
99 m2
Raðhús
313
644 þ.kr./m2
63.800.000 kr.
Skoða eignina Austurhólar 6
Opið hús:26. apríl kl 12:00-12:30
Skoða eignina Austurhólar 6
Austurhólar 6
800 Selfoss
94.6 m2
Fjölbýlishús
413
654 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin