Fasteignaleitin
Skráð 29. sept. 2022
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Villamartin

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
84 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
32.000.000 kr.
Fermetraverð
380.952 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
500070521
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýlegt
Raflagnir
nýlegt
Frárennslislagnir
nýlegt
Gluggar / Gler
nýlegt
Þak
nýlegt
Svalir
Verönd og góðar svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
 *FALLEGT EINBÝLISHÚS*- *SÉRGARÐUR OG SAMEIGINLEG SUNDLAUG*

Fallegt einbýlishús í klassískum Miðjarðarhafsstíl á tveimur hæðum á góðum stað á hinu vinsæla Villamartin svæði. Sér garður og sameiginlegur sundlaugargarður. Bílastæði. Göngufæri í  verslanir og veitingastaði.  ca. 40 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 10 mín akstur á fallega strönd og 10 mín. akstursleið í La Zenia Boulevard verslanamiðstöðina. Göngufæri í Villamartin Plaza veitingahúsakjarnann. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast góða eign á fínu verði í frábæru umhverfi. Ótal góðir golfvellir í næsta nágrenni.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.

Nánari lýsing:

Um er að ræða vel skipulagt 4ra herb. einbýlishús á tveimur hæðum. Á neðri hæð er stofa og borðstofa í opnu rými, vel tengt eldhúsi.  Einnig er svefnherbergi og baðherbergi á neðri hæðinni. Á efri hæð eru tvö góð svefnherbergi ásamt baðherbergi. Útgengi er út á svalir.
Góður lokaður sér garður  og auk þess er aðgangur að snyrtilegum sameiginlegum sundlaugargarði.  

Falleg hvít  sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í  stuttu akstursfæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.

Alicante flugvöllur er í ca. 40 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast góða nýja eign á frábærum stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega.

Verð: 229.000 Evrur + kostn. (ISK. 32.000.000 gengi 1Evra/140ISK)
Innifalið í verði eru rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél.
Húsið er tilbúið til afhendingar STRAX.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.


Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður, allt að ISK 60.000 á mann fyrir tvo, eða samtals allt að ISK.120.000.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 13%.

Eiginleikar: einkasundlaug, sundlaugargarður, air con, sér garður, 
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - El Raso
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - El Raso
Spánn - Costa Blanca
101 m2
Fjölbýlishús
423
321 þ.kr./m2
32.400.000 kr.
Skoða eignina Penthouse Roda Golf
Penthouse Roda Golf
Spánn - Costa Blanca
70 m2
Fjölbýlishús
322
450 þ.kr./m2
31.500.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Villamartin
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Villamartin
Spánn - Costa Blanca
64 m2
Hæð
322
495 þ.kr./m2
31.700.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Villamartin
SPÁNAREIGNIR - Villamartin
Spánn - Costa Blanca
69 m2
Fjölbýlishús
322
483 þ.kr./m2
33.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache