Fasteignaleitin
Skráð 24. nóv. 2026

Hulduhólar 6

Jörð/LóðSuðurland/Selfoss-803
Verð
9.500.000 kr.
Fasteignamat
7.850.000 kr.
Mynd af Snorri Sigurfinnsson
Snorri Sigurfinnsson
Löggiltur fasteignasali
8648090husfasteign.isEignalisti
Fasteignanúmer
2532394
Landnúmer
237373
Húsgerð
Jörð/Lóð
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Lóð
100
Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu. 
Hulduhólar 6. Eignarlóð fyrir íbúðarhús, bílskúr og gestahús í Skálmholtslandi. 8.057 fm


Um er að ræða nýtt byggingarland í Skálmholtslandi. Íbúðalóðir eru frá 7.738 -16.428 fm að stærð.
Nýtingarhlutfall lóða allt að 0,05 sem þýðir að á 10.000 fm lóð (1 ha) má byggja 500 fm.
Þægilegt byggingarland og grunnt niður á fast. Örstutt í malarnámur.
Skemmtileg og góð staðsetning þar sem allar árstíðir eiga sinn sjarma. Sutt í margar af fallegustu náttúruperlum Suðurlands. Fallegt útsýni m.a. til Heklu, Eyjafjallajökuls og Tindfjalla.

Skálmholtsland er efst í Flóahreppi og ekið er inn á landið til austurs af Skeiða- og Hrunamannavegi (vegur nr. 30) 
Um 15 mín akstur er á Selfoss. 

Alls eru skipulagðar 47 lóðir á svæðinu. Í dag eru 13 lóðir seldar í fyrsta áfanga.
Hið skipulagða land er á Sveitarfélagsmörkum Flóahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Flóahreppur annast almenna þjónustu á svæðinu s.s. skólaakstur, snjómokstur og sorphirðu. Ath að samkvæmt deiliskipulagi á eftir að breyta innkomu inn á svæðið.

Í stofnbrautum innan svæðis er neysluvatn (frá Flóahreppi) hitaveita (úr Áshildarmýri, rafmagn (Rarik)
Stofnbrautir fyrir þær lóðir sem eru komnar í sölu eru tilbúnar að lóðarmörkum allra lóða. Kaupandi greiðir inntaksgjöld þegar að því kemur.

Í deiliskipulagsskilmálum koma fram nánari upplýsingar um byggingargerð húsa. Byggingarefni er frjálst en lögð er áhersla á að öll hús og mannvirki fari vel í umhverfi og verði í jarðlitum. Við gróðursetningu skal gæta þess að trjágróður komi ekki til með að skyggja á útsýni nágranna og forðast ágengar tegundir. Óheimilt er að láta lausamuni standa innan lóða til lengri tíma. 
Gert er ráð fyrir rotþró á hverri lóð. Deiliskipulagsskilmálar eru hluti af kynningargögnum. 

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða snorri@husfasteign.is
Bókið einkaskoðun.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.  
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (4)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Loðmundartangi 2
B75A7361.JPG
Loðmundartangi 2
846 Flúðir
161,9 m2
Jörð/Lóð
423
494 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Lautarbrekka 15
Skoða eignina Lautarbrekka 15
Lautarbrekka 15
805 Selfoss
Jörð/Lóð
12.900.000 kr.
Skoða eignina Þverholtsvegur (6-8-10-12-16)
Þverholtsvegur (6-8-10-12-16)
805 Selfoss
90.804,8 m2
Jörð/Lóð
312
0 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Sóltún 33
IMG_1228.JPG
Skoða eignina Sóltún 33
Sóltún 33
800 Selfoss
136,2 m2
Raðhús
212
587 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin