Vel skipulögð og vel við haldin 164,4 fm hæð með bílskúr við Löngubrekku 10a, 200 Kópavogi. Þrjú svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi á efri hæð. Forstofa, gestasalerni, eldhús og rúmgóð stofa á neðri hæð. Útgengi út á svalir frá stofu og þaðan niður stiga í garð sem búið er að útbúa með palli og frábærri aðstöðu. Sérstæður bílskúr þar sem búið er að útbúa stúdíó íbúð, án baðherbergis en auðveldlega hægt að bæta því við og leigja íbúðina út.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.isNánari lýsing eignar:
Inngangur inn í neðri hæð eignarinnar. Forstofa með flísum á gólfi, fatahengi og fataherbegi. Gestasalerni í forstofu. Komið er inn í hol íbúðarinnar úr forstofu. Rúmgott eldhús með góðu vinnuplássi og góðri innréttingu. Nýlega búið að skipta út hluta af innréttingu og setja nýja eldavél. Borðstofa/stofa opin í björtu rými með parket á gólfi. Útgengi út í garð frá stofu sem var allur tekinn í gegn árið 2021. Steypur veggur á milli húsa, jarðvegskipt og settur sólarpallur.
Gengið upp teppalagðan stiga upp á efri hæð hússins. Þrjú svefnherbergi, þvottahús með vaski og baðherbergi með baðkari og innréttingu. Litlar svalir á efri hæðinni með frábæru útsýni yfir borgina.
Búið er að skipta bískúrnum upp með léttum vegg. Fremmra rými notað sem geymsla og búið að útbúa stúdíó íbúð (unglingaherbergi) í innri hluta bílskúrs með sér inngangi. Ekki búið að tengja salerni inni í íbúðinni en stutt í brunn sem er við hlið bílskúrs og þannig auðveldlega hægt að útbúa lítið baðherbergi í íbúðinni.
Endurbætur síðustu ára: Skólp var myndað árið 2022 og reyndist vera í lagi. Garður allur endurnýjaður árið 2021. Þakið var menjað og málað árið 2021. Árið 2012 var húsið sprunguviðgert og málað. Bílskúr sprunguviðgerður og málaður árið 2013.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - eignamidlun@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.