Háaberg 3 - falleg hæð með aukaíbúð og bílskúr í tvíbýli með útsýni í Setbergi, Hafnarfirði.
Eignin er skráð er 243,8m2.
Efri sérhæð er skráð 124,9m2 og tvöfaldur bílskúr 52,3m2. Á hæðinni er alrými með stofu, borðstofu og sjónvarpsholi, stórar L-laga svalir, 3-4. svefnherbergi (herbergi 3 í lýsingu er í raun hluti af bílskúr og er innaf herbergi 2) eldhús, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús og innangengt í bílskúr.
Neðri hæð er skráð 66,6m2, 2. herbergi, hol, eldhús með borðkrók og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Að auki er 13,3m2 sólstofa og aflokað hrátt rými um 50m2 með fullri lofthæð (ekki í skráðri fermetratölu).
Nánari lýsing:
Aðalíbúð (efri sérhæð með bílskúr) og 5-6 herbergjum.
Anddyri: Flísalagt, tvöfaldur innbyggður skápur með rennihurðum og spegli.
Alrými (Stofa, borðstofa, sjónvarpshorn, hol): Rýmið er bjart og rúmgott og býður upp á mismunandi uppröðun og nýtingu. TV tengi á 2 stöðum. Tveir útgangar á L-laga stórar svalir. Harðparket á gólfi. Upptekið loft að mestu leyti með 4,5 metra lofthæð í hæsta punkti. Geymsluris yfir holinu.
Eldhús: Er bjart og mjög rúmgott með borðkrók og gluggum í þrjár áttir. Hlaðinn glerflísaveggur skilur eldhúsið frá stofum. Viðarinnrétting með glerhurðum að hluta og matarbúr með hillum. Tengi fyrir uppþvottavél, vifta, helluborð og ofn í vinnuhæð. Harðparket á gólfi sem þarfnast endurnýjunar.
Svefnherbergi 1: Rúmgott með tveimur gluggum, annar þeirra horngluggi. Stór fataskápur. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi 2 og 3: Herbergi og annað herbergi inn af því (fm fengnir frá bílskúr), sem hægt er að breyta til baka með lokun eða breyta og opna innan úr bílskúr. Fataskápur í fremra herbergi og innbyggt hengi í innra herbergi. Harðparket.
Herbergi 4: Er frekar lítið, (ca 6m2). Gluggi en ekki ofn því var áður stigaopið á neðri hæð. Harðparket á gólfi. Hillur. Stigi er enn til staðar, svo hægt er að breyta til baka.
Baðherbergi: Flísalagðir veggir og gólf í ljósum lit. Hvít innrétting og með sandblásnu gleri. Baðkar með sturtuaðstöðu, innfelld lýsingu við gólf. Upphengt salerni og handklæðaofn. Gluggi.
Gestasalerni: Ljósar gólfflísar. Salerni og handlaug. Gluggi.
Þvottahús/geymsla: Vaskur, hvít innrétting, ljósar flísar á gólfi. Gluggi og háaloftsstigi í geymsluris yfir hluta íbúðar. Þvottahúsið/geymslan liggur milli íbúðar og bílskúrs. Innangengt er úr íbúð, úr bílskúr auk sérinngangs af götu sem býður upp á ýmsar sniðugar hagnýtingarmöguleika s.s. að útbúa íbúðarrými í bílskúr með sérinngangi.
Svalir: Gengið er úr alrými á L-laga breiðar svalir sem snúa til suðausturs og eru meðfram 2 hliðum hússins. Hlið er á svölunum svo hægt er að ganga af þeim bæði niður í garð og framan við hús. Fallegt útsýni yfir Hafnarfjörðinn.
Bílskúr: Er með tveimur bílskúrshurðum og gluggum. Í dag er mestur hluti annars þeirra nýttur sem svefnherbergi (herbergi 3) líkt og áður er lýst en er auðvelt að breyta til baka. Milli herbergis og bílskúrshurðar er geymslu/vinnurými. Hinn hlutinn er nýttur sem bílskúr/geymsla. Vinnuborðsinnrétting og hillur. Loft er einangrað en óklætt. Önnur bílskúrshurðin er löskuð. Innangengt er í bílskúr sem og gegnum sérinngang á þvottahúsi/geymslu. Möguleiki að vera með bílskúr á 2. hæðum vegna 50m2 holrýmis undir honum sem er hægt að opna.
Aukaíbúð á neðri hæð 2 herbergja og sérinngangi:
Sólstofa: Inngangur er um sólstofu sem er um 13,3 m2 og ekki í skráðri fermetratölu samkv. HMS. Leigjendur nýta sólstofuna sem stofu og anddyri í dag. Harðparket á gólfi. Seljandi mun mála ytra byrði sólstofu fyrir afhendingu (er veður leyfir).
Hol: Innaf sólstofu er komið inn í hol sem áður var inngangur. Beint af augum bakvið borðstofuborð er veggur sem er hægt að taka niður og stækka rýmið um óskráða 50 fermetra (hrátt lokað rými undir bílskúr, full lofthæð).
Eldhús/borðstofa: Hvít innrétting með viðarhillum, vifta og tengi fyrir uppþvottavél. Í horninu má sjá hvar stiginn er milli hæða lá áður en lokað var milli hæða. Parket á gólfi. Lítil geymsla í horni eldhúss undir stiganum.
Herbergi 1: Getur verið hvort sem er stofa eða svefnherbergi. Tveir gluggar, annar horngluggi. Harðarket á gólfi.
Herbergi 2: Rúmgott með harðparketi á gólfi. Gluggi þarfnast skoðunar.
Baðherbergi: Er mjög rúmgott með tengi fyrir þvottavél. Baðkar, sturtuhengi. Gluggalaust. Dúkur á gólfi. Nægt gólfpláss fyrir þurrkrými þvottar.
Verönd/garður: Útiverönd með palli mót suðvestri og garður í óskiptri sameign með útisnúrum. Útsýni myndast milli húsa fyrir neðan. Einnig er lítill garður á efri hæð sem snýr að götu.
Nánasta umhverfi:
Eignin er á vinsælum stað í Hafnarfirði. Setbergsskóli og leikskólinn Hlíðarberg eru í göngu- fjarlægð sem og þjónustukjarninn við Hlíðarberg, þar er m.a. Krambúð, matvöruverslun, Pizzahut, Apótekið, tannlæknir, hárgreiðslustofa og nudd- & snyrtistofa. Strætó stoppar stutt frá. Suðurbæjarlaug. Undirgöng liggja að Lækjarskóla og tengja svæðið við Tjörnina og gamla bæinn. Stutt er í alla aðra þjónustu, s.s verslunarmiðstöðina Fjörðinn þar sem Heilsugæslan er. Stutt að fara í Bónus, Krónuna, Fjarðarkaup og Costco auk fjölda veitingastaða og þjónustuaðila. Fallegar gönguleiðir.
Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga). 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar. 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.