BYR FASTEIGNASALA kynnir í einkasölu TUNGUMELUR 9, 730 Reyðarfjörður, Fjögurra herbergja endaraðhús á einni hæð.Húsið er byggt árið 2004, 104,9 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, gangur og geymsla.
Fyrirhugað fasteignamat ársins 2023 er kr. 32.500.000,- Nánari lýsing:
Anddyri með fatahengi og efri skápum.
Úr anddyri er komið inn á
gang þaðan sem innangengt í alrými, svefnherbergi, geymslu, baðherbergi og þvottahús.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er frá stofuhluta á aflokaða verönd framan við húsið.
Eldhús með viðarklæddri eldhúsinnréttingu og eyju. Stálvaskur, helluborð, ofn, vifta, ísskápur og uppþvottavél.
Svefnherbergin eru þrjú öll með fataskápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og hvít máluðum veggjum. Sturtuklefi, salerni og rúmgóð baðinnrétting með handlaug og blöndunartæki í borði.
Þvottahús með rúmgóðri innréttingu með stálvaski í borði.
Gólfefni: Flísar eru á forstofu, baðherbergi, og þvottahúsi. Flæðandi parket er á alrými, gangi, svefnherbergjum og geymslu.
Skráð byggingarár hússins er árið 2004, byggingarefni er timbur samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Útveggir eru klæddir að utan með báruklæðningu í bland við viðarklæðningu. Hellulagt er við inngang framan við íbúðina.
Íbúðinni tilheyra 2 steypt bílastæði fyrir framan íbúðina og sérafnotaflötur út frá veggjum að lóðarmörkum. Sér inntök eru fyrir vatn og rafmagn.
Vel skipulagt endaraðhús í nýlegu hverfi á Reyðarfirði, stutt í alla almenna þjónustu. Ýtið hér fyrir staðsetningu.