Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala í Dalabyggð kynna:
Mikið endurnýjað kósý einbýlishús á fallegri sjávarlóð með útsýni út á sjóinn í Búðardal, Dalabyggð.
Húsið er alls 77,7 fm að stærð skv. fasteignaskráningu eignarinnar.
Komið er inn í andyri með dúk á gólfi og fatahengi. Gengið er inn í alrýmið þar sem stofa er, eldhús með eldri innréttingu og borðstofa er svo sjávarmeginn með fallegur útsýni út í garðinn og út á sjó. Tvö rúmgóð svefnherbergi eru og milli þeirra er baðherbergi með sturtu, vask með hirsluskáp, upphengdu wc og tengi fyrir þvottavél. Baðhergið er langt komið í endurnýjun, bara smálegur frágangur eftir, m.a. er vaskur ótengdur. Timbuplankagólf eru í gömlum stíl á öllum gólfum utan andyris. Lóðin er 238 fm sjávarlóð, fallega gróin og með mikla möguleika til uppbyggingar. Gott bílastæði meðfram húsinu getur rúmað allt að tvo bíla. Gatan er botngata með rólegri umferð.
** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is
Helsta um endurbætur og sögu:
Eignin var nánast endurbyggð árið 2011, stækkað í núverandi stærð, sett ný einangrun í veggi, þakið endurnýjað, gluggar yfirfarnir, viðgerðir og sett nýtt tvöfalt gler, húsið klætt að utan með bárujárni.
Að innan var haldið í gamla stílinn að miklu leiti en margt sem þurfti endurnýjað.
Árið 2023 var frárennsli endurnýjað frá húsi og út í götu og settur brunnur.
Árið 2025 var hitaveitugrind endurnýjuð og lagnir einangraðar upp á nýtt.
Endurnýjun á baðherbergi er langt komin, upphengt wc, sturtuklefi, tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi og smálegur frágangur eftir hér og þar, m.a. er vaskur ótengdur.
Í Búðardal er mjög fjölskylduvænt samfélag þar sem stutt er í fallega náttúru og fjölbreytta útivist. Grunnþjónusta er góð, bæði leik- og grunnskóli, verslun, íþróttaaðstaða og sundlaug, vegalengdir innanbæjar eru stuttar og allar í göngufæri. Hentar vel þeim sem sækjast í rólegt og öruggt umhverfi og vilja búa í litlu en persónulegu samfélagi.
Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.