Þórunnarstræti 130 - Björt og mjög mikið endurnýjuð 3 herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýli á Brekkunni - stærð 91,9 m²
** Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega **- Nýleg eldhúsinnrétting
- Nýlegt baðherbergi.
- Nýleg gólfefni
- Gólfhiti
- Allar vatnslagnir og fráveitulagnir endurnýjaðar út fyrir hús
- Nýlegar innihurðir
- Nýlegt gluggastykki með þreföldu gleri og rennihurð út á verönd
Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Sér geymsla er í sameign.Forstofa og hol eru með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Eldhús er með fallegri grárri innréttingu með spanhelluborði, ofni í vinnuhæð og innbyggðri uppþvottavél og ísskáp. Flísar eru milli skápa og harðparket á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð, stór gólfsíður gluggi og rennihurð út á timbuverönd með steyptum skjólveggjum. Harðparket er á gólfi í stofu.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með hvítum innbyggðum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er einkar glæsilegt, þar er dökk innrétting, upphengt wc, handklæðaofn og walk-in sturta með innbyggðum tækjum. Sér innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar eru á gólfi og hluta veggja.
Sér
geymsla er í sameign á hæðinni, skráð 9,6 m² að stærð. Þar er lakkað gólf og gluggi.
Annað- Aðalinngangur fyrir húsið er á vestur hliðinni og þar eru malbikuð stæði, einnig er hægt að koma aftan að húsinu, þar er perla í bílaplani og inngangur.
- Búið er að taka inn ljósleiðara.
- Snyrtileg sameign.
- Sameiginleg hjóla og dekkjageymsla.
- Eignin er í einkasölu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.