Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Aðalgötu 17, 230 Keflavík.
Um er að ræða eign sem gengið hefur undir nafninu Litli hvíti kastalinn. Eignin stendur á ca. 610m2 séreignarlóð og samanstendur af fjórum einingum þ.e. aðalbyggingu á tveimur hæðum, tveimur studíó-íbúðum auk geymsluskúrs á tveimur hæðum á baklóð. Einnig liggur fyrir samþykki Reykjanesbæjar fyrir 94m2 byggingu á baklóð fasteignarinnar.
Eignin bíður uppá kjörið viðskiptatækifæri í ferðaiðnaðinum og hefur hlotið lof viðskiptavina í gegnum tíðina ásamt viðurkenningum frá ferðasölum t.d. Booking, AirBnb og fleirum. Eignin hefur einnig í tvígang hlotið viðurkenningar Reykjanesbæjar fyrir breytingar, hönnun og útlit bæði húss, garðs og umgjarðar og er staðsett við hjarta Keflavíkur þar sem stutt er í alla helstu þjónustu t.d. skóla, leikskóla, verslanir auk almennrar þjónustu.
Nánari lýsing:
Eignin er afgirt að framanverðu með stálgirðingu ásamt göngu og aksturs-hliðum í sama stíl.
Stétt að framanverðu er steinsteypt og fallega útfærð með timburpóstum sem skipta henni upp í reiti sem eru ca. 1 fm. að stærð hver.
Inngangar í aðalbyggingu og fremri stúdíó-íbúð vísa út á götu. Einnig eru sérhannaðar bogadyr að framanverðu sem lyggja að bakgarðinum og annari stúdíóíbúð.
Þegar gengið er í gegnum Aðalhlið Eignarinnar, taka við tröppur þar sem ljón úr hvítum ítölskum marmara sitja á stöplum til beggja hliða. Svartar marmarasúlur bera einnig skyggni framan við aðaldyr.
Komið er inn í litla forstofu þegar gengið er inn um aðaldyr kastalans. Þar er innangengt inn á gestasalerni, svefnherbergi og eldhús. Innréttingar í eldhúsi eru sérsmíðaðar í gömlum stíl og hefur nýlega verið skipt um borðplötu ásamt því að innréttin, loft og veggir hefur verið endurmálað.
Úr eldhúsi er gengið inn í bjarta sameiginlega stofu og borðstofu með gluggum sem vísa út í bakgarðinn. Í stofunni er arinn sem þarf að yfirfara og laga ef taka á í aðra notkun en að vera augnayndi. Arininn er sérsmíðaður að mestu úr gifsi og situr á steyptri plötu. Arininn er handmálaður í svörtum Ítölskum “Portoro” marmarasơl og einnig eru gluggakistur stofunnar í sama stíll. Gólfefni eru úr massífri Eik og er hún olíuborin. Veggir eru útfærðir með sérsmíðuðum römmum og smáum kastalakubbum að neðanverðu og einnig eru glugga-gerefti sérsmíðuð auk skrautlista í lofti.
Úr borðstofuhluta stofunnar er gengið niður hringstiga þar sem við tekur sjónvarpsherbergi og frá sjónvarpsherberginu liggja dyr að aðal baðherbergi og svefnherbergi eignarinnar. Veggir í sjónvarps- og svefnherbergi eru útfærðir á spánskan máta. Inn af svefnherbergi er afar vel útfært baðherbergi sem útbúið er með sturtu og gufubaði, hornbaðkari, salerni og vaski. Inn af baðherberginu er vel útbúið þvottahús með nýjum innréttingum. Einnig má finna í þvottahúsinu hitastýringuna fyrir eignina. Svefnherbergið er rúmgott og útbúið sérsmíðuðum fataskápum. Útfrá svefnherberginu liggja dyr út á niðurgrafna verönd sem bíður upp á mjög skjólgott svæði. Sérsmíðaður steyptur heitapottur er á veröndinni ásamt útieldhúsi, arinn og lítilli geymslu þar sem einnig má finna sjálfvirka hitastýringu fyrir heita pottinn. Frá veröndinni lyggja þrep upp á baklóðina. Einnig má nálgast bakglóðina inn um stórar sérsmíðaðar bogadyr að framanvörðu. Þegar gengið er í garðinn inn um bogadyrnar er komið inn á skemmtilega útfærða verönd sem er hellulögð í tréramma.
Alls eru þrjár verandir í bakgarðinum. Frá veröndinni handan bogadyranna lyggur stígur lagður nátturustein að litlu hringtorgi og frá því er komið að annari stúdíóíbúðinni sem einnig er útbúin með útverönd. Þegar gengið er inn um aðaldyr stúdíóíbúðarinnar er komið inn í sambyggða setustofu og eldhús sem er útbúið öllum helstu tækjum og búnaði til eldunar. Gólfið er með svokallað steinteppi/Epoxy. Frá eldhúsi lyggja dyr að svefnherbergi sem er útbúið með vínil gólfefni og inn af svefnherbergi er gengið inn á flísalagt baðherbergi útbúið með upphengdu salerni, vaski, vaskaskáp og sturtu. Gengið er inn um sér-inngang í fremri stúdíó-íbúðina að framanverðu við hlið aðalbyggingar. Komið er inn í litla forstofu með sérsmíðuðum skápum og þar í framhaldi tekur við alrými útbúið með svefnaðstöðu fyrir 3 og lítillri eldhús-aðstöðu. Inn af alrými er gengið inn á flísalagt salerni með sturtu, vask, vaskaskáp og upphengdu salerni.
Á baklóðinni er einnig að finna rúmlega 20m2 bárujárnsklæddur geymsluskúr á tveimur hæðum.
Helstu stærðir: Séreignarlóð: 610m2, Aðalbygging 1 hæð: 66.8m2, Aðalbygging kjallari: 66.8m2, Flatarmál hliðarbyggingar: 57m2, Heildar flatarmál bygginga: 190.6m2, Nýtingarngarhlutfall: 0.39.
Eignin hefur frá s.l. ári farið í gegnum gagngera endurnýjun á flestum innviðum eftir vatnstjón auk þess sem skipt hefur verið um viðarparket, alla glugga og útveggir endurpússaðir og málaðir. Veggir og loft innandyra er einnig nýmálað. Skipt var um hitastýribúnað á s.l. ári og er nú allri hitun á eigninni stjórnað með Danfoss Link Connect sem stjórna má með þar með appi á síma og auk þess frá stjórnborði sem staðsett er í stofu aðalbyggingar.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50 eða á netfanginu es@es.is og í síma 420-4050
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.