Fasteignaleitin
Skráð 10. nóv. 2026

Risadalur 4D - 104

FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
115.8 m2
4 Herb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
603.627 kr./m2
Fasteignamat
73.350.000 kr.
Brunabótamat
71.750.000 kr.
Byggt 2025
Jarðhæð
Svalir
Pallur
Fasteignanúmer
2538087
Landnúmer
233059
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
04
Lóðarréttindi
Leigulóð
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Risadalur 4D, 260 Reykjanesbær,  birt stærð 115.8 fm.
Fjögurra herbergja nýbygging með sjávarútsýni – Dalshverfi III, Reykjanesbæ. Laus til afhendingar við kaupsamning.
Íbúðin er björt og vel skipulögð, fjögur herbergi, í nýju og fjölskylduvænu hverfi í Innri-Njarðvík. Hún er á neðri hæð með sér inngangi og verönd til suðvesturs, og úr henni er glæsilegt sjávarútsýni. Íbúðin afhendist fullbúin með gólfefnum.

** Þrjú svefnherbergi
** Sér inngangur
** Verönd til suðvesturs
** Fullbúin að innan sem utan, með gólfefnum
** Afhending við kaupsamning

Nánari upplýsingar veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali,  í síma 560-5501 tölvupóstur pall@allt.is. 
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur sigurjon@allt.is.


Um verkefnið
Dalshverfi III er nýtt og fjölskylduvænt íbúðahverfi í Innri-Njarðvík. Þar rísa alls 20 fjölbýlishús á tveimur hæðum, og eru níu íbúðir í hverju húsi. Íbúðirnar eru fjölbreyttar og vel skipulagðar, tveggja til fjögurra herbergja. Þær eru allar með sér inngangi, og svalir og sólpallar snúa til suðvesturs.

Skilalýsing
Eignin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu byggingaraðila.

Gólfefni og eldhús
Parket á stofu, eldhúsi og herbergjum
Eldhúsinnréttingar frá HTH eða sambærilegar að gæðum
Helluborð, bakaraofn og háfur frá AEG eða sambærilegt

Baðherbergi
Flísar á gólfi og á tveimur til þremur veggjum, upp í 2,1 m hæð
Upphengt salerni, innbyggt í vegg
Sturta með flísalögðum sturtubotni
Handklæðaofn

Hús og frágangur
Húsið er byggt úr forsteyptum einingum
Ál/trégluggar
Veggir spartlaðir, grunnaðir og málaðir í ljósum lit
Þakplata varin með tveimur lögum af viðurkenndum heilbræddum þakpappa, XPS-einangrun, jarðvegsdúk og harpaðri þakmöl (60–80 mm)
Nánari lýsingu er að finna í skilalýsingu byggingaraðila.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati. Gjaldið er lagt á eftir að endanlegt brunabótamat liggur fyrir.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
ALLT FASTEIGNIR ehf
http://www.allt.is

Myndir (6)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dísardalur 7
Á einni hæð
Skoða eignina Dísardalur 7
Dísardalur 7
260 Reykjanesbær
108,3 m2
Fjölbýlishús
413
623 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Dísardalur 4
Efsta hæð
Skoða eignina Dísardalur 4
Dísardalur 4
260 Reykjanesbær
118,8 m2
Fjölbýlishús
413
588 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Risadalur 5A
Skoða eignina Risadalur 5A
Risadalur 5A
260 Reykjanesbær
108,7 m2
Fjölbýlishús
312
621 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Risadalur 2B - 102
Risadalur 2B - 102
260 Reykjanesbær
121,3 m2
Fjölbýlishús
413
602 þ.kr./m2
73.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin