Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Fagurhól 10, 245 Sandgerði.
Um er að ræða virkilega vel skipulagt 68,10 m2 raðhús, á góðum stað í Sandgerði.
Eitt svefnherbergi, baðherbergi, hol og stofa ásamt borðstofu, þvottahús og geymsla og góð verönd að aftan, gólfefni eru flísar og parket. Íbúðarhluti hússins er skráður 68,10 m2.Nánari lýsing:Gengið er inní
anddyri með flísum á gólfi, úr anddyri er gegnið inn í
hol og stofu með parketi á gólfi,
borðstofa er hluti af stofunni með hurð út á pall. E
ldhús með parket á gólfi, nýleg og góð innrétting og tæki.
Svefnherbergi er rúmgott með parket á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, góð innrétting, sturta og upphengt salerni.
Þvottahús og geymsla er innaf anddyri með epoxy á gólfi.
Afgirtur viðarpallur og geymsluskúr.Lóð er með grasi að aftan, plan er malbikað og stéttar hellulagðar.
Staðsetningin er góð, stutt í leik- og grunnskóla, sundlaug og líkamsrækt.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050 eða á netfangið: es@es.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4%
ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr.
3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar
á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, skv. gjaldskrá.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.