Fasteignasala Suðurlands (s 483-3424) kynnir í einkasölu: Hjallabraut 18, Þorlákshöfn. Um er að ræða sérlega vel staðsett 133,7m2 einbýlishús með 4 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og góðum bílskúr. Garðurinn er með stórum sólpöllum með góðum skjólveggjum.
Eignin er staðsett í einstöku umhverfi, í rólegum botnlanga, rétt við skrúðgarð bæjarins, í grónu hverfi, steinsnar frá skóla, leikskóla og íþróttasvæði og verslunarkjarna.
** Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **
Eignin skiptist svo.
* Forstofu með flísum á gólfi og fatahengi.
* Inn af anddyri er lítið wc.
* Stóra stofu og borðstofu með nýju harðparketi á gólfi.
* Rúmgott eldhús með beiki-innréttingu og flísum á gólfi.
* Þvottahús með stórri innréttingu og flísum á gólfi. Utangengt er úr þvottahúsi.
* Inn af eldhúsi er búr með hillum á veggjum.
* 4 rúmgóð svefnherbergi eru í húsinu. Góðir skápar eru í herbergjum og nýtt harðparketparket á gólfi.
* Baðherbergi með góðri innréttingu, uppbyggðu baðkari / sturtu. Flísar á gólfi og veggjum.
* Stór, nýlegur sólpallur með góðum skjólveggjum. Lýsing er í skjólveggjum.
* Verið er að girða húsið að sunnan- og vestanverðu.
* 33m2 bílskúr. Framan við bílskúrinn hefur verið byggð 30,7m2 lokuð, köld geymsla úr stálgrind, klædd yleiningum og hefur hún verið tengd bílskúrnum.
Stór (3x3m) aksturshurð er á geymslunni.
Húsið hefur fengið gott viðhald:
* Nýir ál/ tré gluggar eru í nær öllu húsinu.
* Nýjar ofnalagnir.
* Nýtt járn á þaki húss og bílskúr. Eftir er að klæða skúr að hluta, en járnið er til.
* Búið er að klæða bæði hús og skúr með liggjandi báruáli.
* Nýjar innihurðar eru í öllu húsinu, nema á búri og gestasalerni.
* Nýr sólpallur með góðum skjólveggjum.
* Búið er að leggja fyrir gólfhita á baðherbergi ( hitalögn ótengd)
* Nýr þrýstikútur fyrir heita vatnið og nýr þrýstijafnari.
* Skipt hefur verið um alla rafmagnstengla.
FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is