LIND Fasteignasala & Páll Konráð lgfs kynna til sölu:
Sjávarborg 5A, 190 Vogar eignin telur 130,4 fm fimm herbergja ENDA-raðhús á einni hæð á glæsilegum stað í vogunum.
Sjávarborg er hverfi í uppbyggingu með glæsilegu sjávarútsýni. Íbúðir skilast allar fullbúnar (samkvæmt skilalýsingu).
Nánari upplýsingar veita:
Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is
--Seljandi skoðar skipti á minni eignum--
--Gólfsíðir gluggar í alrými--
--Danfoss stýrikerfi fyrir gólfhita--
--Aukin lofthæð--
--Fullbúið með gólfefnum og tækjum--
--Rafmagnshleðslustöð á bílastæði--
--Heitur pottur--
--Niðurlímt parket ( askur ) á gólfum. Flísar á votrýmum--
--Íbúðir skilast allar fullbúnar (samkvæmt skilalýsingu)--
Eignin skiptist í: Forstofu, stofu, borðstofu/eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymsla. Fallegt útsýni er úr alrými eignarinnar.
Nánari upplýsingar veita:
Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is
Arkitekt húsanna er TEIKNA - Teiknistofa arkitekta.
Nánari lýsing:
Forstofa: Er með flísum á gólfum og rúmgóðum fataskápum.
Stofa og borðstofa er í opnu og fallegu alrými með eldhúsi, rúmgóð stofa með útgengi á sólpall sem klæddur er með fallegu lerki, búið er að koma fyrir heitum pott, lofthæð innan eignarinnar á hæsta punkt eru um fjórir metrar. Innfelld lýsing þar sem á við.
Eldhús: er opið við stofu. Eldhúsinnrétting er hvít melamine með ljósri Quartz borðplötu. Með hverri íbúð fylgir span helluborð með gufugleypi, bakarofn, örbylguofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.
Svefnherbergi eru fjögur talsins þeim fylgja fataskápar í sama lit og efni og er á eldhúsinnréttingu. Parket á gólfum.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf með 60x60 flísum, upphengt salerni, sturtuklefi og innrétting við vask með ljúflokun á skúffum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Þvottahús / Geymsla er með flísum á gólfi, innrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Verandir við bakhlið eru úr timbri (lerki). Stéttir og bílastæði við aðkomuhlið íbúða eru hellulögn og snjóbræðsla er í gangstéttum. Eignir eru afhentar án trjágróðurs á lóð. Bílastæði er fyrir framan hvert hús.
Sjávarborg er staðsett í Grænubyggð sem er hverfi sem mun byggjast upp á næstu árum í fallegu, fjölskylduvænu og rólegu umhverfi við sjávarsíðuna. Sérstaklega vel staðsett fyrir þá sem vilja vera í nágrenni höfuðborgarsvæðisins en í rólegu og fjölskylduvænu umhverfi. Vogar er einstaklega barnvænt sveitarfélag og þar er stutt í alla helstu þjónustu og tómstundir.
Kaupendur greiða skipulagsgjald sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati íbúðarinnar.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.