BYR fasteignasala kynnir í einkasölu KOLTRÖÐ 8, 700 Egilsstaðir. Sex herbergja endaraðhús á tveimur hæðum á vinsælum stað á Egilsstöðum.
Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni
byggingatæknifræðing.
Stutt í alla almenna þjónustu s.s. grunnskóla og útivistarsvæði. Smellið hér fyrir staðsetningu.Húsið er steypt byggt árið 1991. Húsið skiptist í tvær hæðir, efri hæð 96.5 m² og neðri hæð 95.1 m², samtals 191.6 m², samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag;Efri hæð: Anddyri, gestasalerni, gangur/skáli, dagstofa og borðstofa, herbergi, eldhús og geymsla/búr.
Neðri hæð: Skáli/sjónvarp, þrjú herbergi, baðherbergi, þvottahús og forstofa, geymsla.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |Nánari lýsing;
Efri hæð: Anddyri, tvöfaldur fataskápur, flísar á gólfi (rafmagnstafla) innangengt er á gestasalerni.
Gestasalerni, handlaug og salerni, flísar á gólfi, gluggi.
Gangur/skáli, flísar á gólfi, þaðan liggur stigi niður á neðri hæð.
Dagstofa og borðstofa, plastparket með korkundirlagi, (vegghengdar einingar fylgja ekki).
Eldhús, U-laga innrétting, spanhelluborð og háfur, ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu (getur mögulega fylgt), borðkrókur.
Innangengt er í geymslu/búr frá eldhúsi.
Herbergi I, plastparket á gólfi, tvöfaldur fataskápur.
Geymsla/búr, dúkur á gólfi, veggfastar hillur og neðri skápar, gluggar.
Timburstigi er á milli hæða, ekki er handrið á neðri hluta stiga.
Neðri hæð:
Skáli/sjónvarp, parket á gólfi, veggfastar hillur fylgja. Rafmagnstafla er við stiga á neðri hæð.
Herbergi II, hjónaherbergi, sexfaldur fataskápur, parket á gólfi.
Herbergi III og IV, parket á gólfi, tvöfaldur fataskápur er í báðum herbergjum.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, upphengt salerni og baðkar (baðkar er ekki klætt af), sturta með gleri, handklæðaofn og gluggar.
Þvottahús, epoxy á gólfi, Ikea innrétting með hækkun fyrir tvær vélar, vaskur í borði.
Forstofa (þvottur á teikningu) útgengt út í bakgarð, málað gólf, stálvaskur í borði, hillur.
Á „neðri hæð" undir bílskúrsplötu er
geymsla, (óskráð) gengið inn að utanverðu aftan við húsið, einnig er innangengt frá neðri hæð hússins.
Veggir og loft í geymslu er grófir og ómúrað-ir, innrétting með vinnuborði og veggskápum eru innst í geymslu.
Uppsett ljósakerfi er í anddyri á efri hæð, gangi, dagstofu og borðstofu ásamt skála á neðri hæð.
Gert er ráð fyrir tvöföldum bílskúr við húsið samkvæmt teikningum, bílskúrinn hefur ekki verið byggður en plata er fyrir hendi undir bílskúr.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:Fasteignanúmer 217-5777. Koltröð 8, Múlaþing.Stærð: Íbúðarherbergi í kjallara 95.1m². Íbúð á hæð 96.5 m² Samtals 191.6 m².
Brunabótamat: 91.250.000 kr.
Fasteignamat: 73.500.000 kr.
Byggingarár: 1991.
Byggingarefni: Steypa.
Eignarhald:
01.0001 Íbúðarherb í kjalla 95.1 Brúttó m².
01.0101 Íbúð á hæð 96.5 Brúttó m².
Koltröð 8 er staðsteypt hús á tveimur hæðum, aluzink á þaki (nýtt 2020 sperrur og járn), timburgluggar og hurðar.
Möl er í bílaplani framan við hús, pláss fyrir þrjár bifreiðar, hellulögð stétt liggur að inngangi hússins.
Lóð er gróin,
tvær timburverandir eru við húsið, timburverönd með skjólveggjum (suður) er við inngang hússins og þar til hliðar (suð-vestur) er önnur nýlegri timburverönd frá 2025 með skjólveggjum. Sorptunnuskýli fyrir þrjár tunnur er til staðar.
Lóð er 750 m² leigulóð í eigu Múlaþings.