Stofn fasteignasala og Hallveig Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali kynna: Klettagljúfur 23 í Ölfusi, vönduð 402,6 fm eign í Klettagljúfri 23 í Ölfusi, í um 35 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Eignin skiptist í 301,2 fm aðalíbúð á efri hæð með innbyggðum tvöföldum bílskúr og 101,4 fm aukaíbúð á jarðhæð, að meðtalinni 6,4 fm geymslu. Aukaíbúðin er í útleigu. Fastanúmer eignar: F230-1462.
Innanhússhönnun er eftir Rut Káradóttur innanhússarkitekt. Eignin er með vönduðum innréttingum, mikilli lofthæð og björtum alrýmum. Fallegt útsýni er til suðurs, vesturs og norðurs.Nánari upplýsingar og bókun skoðunar: Hallveig Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali Sími: 699-0496 Netfang: hallveig@stofnfasteignasala.isHelstu kostir:• Innanhússhönnun eftir Rut Káradóttur.
• Björt og rúmgóð alrými með mikilli lofthæð.
• Fallegt útsýni til suðurs, vesturs og norðurs.
• Rúmgóð hjónasvíta með fataherbergi og svölum.
• Heitur pottur á svölum.
• Innbyggður tvöfaldur bílskúr með rafdrifnum hurðum.
• Gólfhiti og loftræstikerfi að stærstum hluta hússins.
• Samræmdar innréttingar og vandaður frágangur.
Nánari lýsing:
AÐALÍBÚÐ – EFRI HÆÐ, 301,2 FM (01-0201)Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með ljósu flotuðu gólfi og góðum fataskápum.
Stofa og borðstofa: Opið alrými þar sem mikil lofthæð, falleg hönnun og rúmgóð rými njóta sín til fulls. Eldhús, borðstofa og stofa mynda saman bjart og skemmtilegt alrými.
Fallegur stoðveggur skilur að eldhús og stofurými og í honum er arinn með blámaðri járnklæðningu sem setur sterkan svip á rýmið. Sérstakur hljóðdúkur hefur verið felldur inn í loft stofunnar.
Eldhús: Stórt og glæsilegt eldhús með vandaðri hvítri innréttingu sem nær upp í loft. Rúmgóðir skápar, búrskápur, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Stór eldunareyja með gashelluborði og góðu skúffuplássi. Eldhúsið er vel skipulagt og býður upp á góða vinnuaðstöðu.
Svefnherbergisálma: Frá alrýminu er gengið inn á herbergisgang þar sem svefnherbergi og baðherbergi eru staðsett.
Baðherbergi: Glæsilegt og rúmgott baðherbergi með flísalögðum veggjum, vandaðri innréttingu, fallegum speglavegg með lýsingu, vegghengdu salerni og rúmgóðri walk-in sturtu með glerskilrúmi. Flísalagður setbekkur við vaskinn setur skemmtilegan svip á rýmið.
Svefnherbergi: Tvö mjög rúmgóð svefnherbergi án fastra fataskápa sem bjóða upp á fjölbreytta möguleika við innréttingu.
Hjónasvíta: Innst á herbergisgangi er rúmgóð hjónasvíta með sér fataherbergi. Í fataherberginu eru fataskápar eftir heilum vegg og þaðan er útgengt á svalir sem snúa til norðvesturs.
Þvottaherbergi: Stórt og vel skipulagt þvottaherbergi með vönduðum innréttingum, góðu skápaplássi, rúmgóðri borðplötu og vaski. Þar er einnig flísalagður setbekkur, sér salernisherbergi með vegghengdu salerni og aðskilin walk-in sturta.
Úr þvottaherberginu er útgengt á svalir þar sem heitur pottur er staðsettur.
Aukaforstofa og bílskúr: Frá herbergisgangi er gengið inn í aukaforstofu með sérinngangi og þaðan er innangengt í innbyggðan, tvöfaldan bílskúr.
Bílskúrinn er með mikilli lofthæð, rafdrifnum bílskúrshurðum, þriggja fasa rafmagni og búið er að leggja fyrir hleðslustöð rafbíla. Þar er einnig innrétting með vaski.
AUKAÍBÚÐ – JARÐHÆÐ, 101,4 FM (01-0102)Á jarðhæð hússins er aukaíbúð með sérinngangi norðanmegin við húsið og verönd við innganginn. Íbúðinni fylgir einnig 6,4 fm geymsla.
Íbúðin er í dag nýtt sem stúdíóíbúð en skipulag hennar býður upp á möguleika á að afmarka sérstakt svefnherbergi með glugga.
Forstofa: forstofa með fataskáp. Inn af forstofu er sér þvottaherbergi með góðri innréttingu og skápaplássi.
Eldhús og stofa: rúmgott alrými með snyrtilegri L-laga eldhúsinnréttingu, viðarborðplötu, góðu skápaplássi og innbyggðri uppþvottavél. Úr stofu er útgengt um rennihurð á verönd.
Svefn- og vinnuaðstaða: Í íbúðinni er alrými með glugga sem í dag er nýtt sem vinnuaðstaða. Möguleiki er á að stúka rýmið af sem sérstakt svefnherbergi. Inn af því er núverandi svefnaðstaða með góðum fataskápum.
Baðherbergi: Vandað baðherbergi með flísalögðum veggjum, innréttingu við vask, speglavegg með lýsingu, flísalögðum setbekk, vegghengdu salerni, handklæðaofni og walkin sturtu með glerskilrúmi.
Geymsla: Íbúðinni fylgir 6,4 fm geymsla samkvæmt fyrirliggjandi skilgreiningu.
Lóð og umhverfi:Húsið stendur á stórri lóð í Klettagljúfri í Ölfusi. Staðsetningin býður upp á fallegt útsýni til þriggja átta.
Samkvæmt eldri upplýsingum um deiliskipulag Gljúfurárholts frá árinu 2007 var gert ráð fyrir möguleika á byggingu allt að 100 fm hesthúss á lóðinni. Jarðvegsskipti hafa farið fram á fyrirhuguðum byggingarstað norðan við húsið.
Kaupendum er bent á að kynna sér gildandi skipulagsheimildir, lóðarréttindi og skilyrði hjá viðkomandi sveitarfélagi.
Frágangur og tæknileg atriði:• Húsið er steinað að utan og þakkantar klæddir álklæðningu.
• Gólf eru flotuð og lökkuð í ljósum lit.
• Gólfhitakerfi og loftræstikerfi eru að stærstum hluta hússins.
• Innfelld lýsing er í loftum hússins.
• Upptekið loft í stofurými aðalhæðar með sérstökum hljóðdúk.
• Samræmdar innréttingar, hurðir og fataskápar skapa heildstætt og fágað yfirbragð.
Nánari upplýsingar og bókun skoðunar: Hallveig Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali Sími: 699-0496 Netfang: hallveig@stofnfasteignasala.is