Fasteignaleitin
Opið hús:20. sept. kl 12:00-12:30
Skráð 15. sept. 2026

Þórsgata 25

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
99 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.000.000 kr.
Fermetraverð
949.495 kr./m2
Fasteignamat
85.050.000 kr.
Brunabótamat
58.100.000 kr.
Mynd af Helga Pálsdóttir
Helga Pálsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1940
2. hæð
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2006039
Landnúmer
101783
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
ekki vitað
Raflagnir
ekki vitað , nýlegar rafmagnstöflur
Frárennslislagnir
endurnýjaðar undir húsi
Gluggar / Gler
endurnýjaðir eftir þörfum
Þak
endurnýjað þakjárn ca 2015
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
til austurs
Upphitun
Hitaveita, gólfhiti að hluta,
Inngangur
Sameiginlegur
ÞÓRSGATA 25, 101 REYKJAVÍK

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna bjarta, hlýlega og einstaklega vel skipulagða 99 m², 5 herbergja fjölskylduíbúð á 2. hæð við Þórsgötu 25, 101 Reykjavík, efst í Þingholtunum.


Eignin skiptist meðal annars í þrjú svefnherbergi, tvær samliggjandi stofur, eldhús, baðherbergi, svalir með útsýni að Hallgrímskirkju, sérgeymslu í kjallara og aðgang að sameiginlegum garði.
Íbúðin hefur verið töluvert endurnýjuð á smekklegan hátt á síðustu árum, en jafnframt hefur verið lögð áhersla á að varðveita fallegar, eldri sérsmíðaðar íslenskar innréttingar og karakter eignarinnar.

Inngangi er deilt með íbúðum á 1., 2. og 3. hæð en kjallari er með sérinngangi. Kjallari og 1. hæð hússins voru byggð árið 1940. Árið 1957 var húsið stækkað og 2. og 3. hæð bætt við.
Þórsgata er róleg vistgata á einstaklega góðum stað í miðborg Reykjavíkur. Húsið hefur verið múrviðgert og málað að utan á síðustu árum. Stigagangur hefur einnig nýlega verið endurnýjaður með nýju teppi og málningu, auk þess sem svalir og svalahurðir hafa verið málaðar.


Nánari lýsing
Forstofa: Rúmgóð og breið forstofa með hvítum fataskápum frá gólfi upp í loft með rennihurðum. Falleg eldri hurð með gleri liggur inn í íbúðina. Vínilparket á gólfi.
Stofa og borðstofa:
Tvær samliggjandi stofur sem mynda í dag bjart og rúmgott alrými. Stórir gluggar til suðurs og austurs hleypa mikilli birtu inn. Opið er fram í forstofu.
Eldhús:
Falleg íslensk U-laga innrétting sem var máluð árið 2026 í hlýjum ólífugrænum tón. Viðarborðplata og hvítar flísar á milli skápa. Bakaraofn undir borði, helluborð og innbyggð uppþvottavél. Opnar hillur eru við eldunarsvæði og góður borðkrókur við glugga. Mynstraðar flísar á gólfi og gluggar á tvo vegu sem hleypa mikilli náttúrulegri birtu inn.
Gangur:
Tengir saman helstu rými íbúðarinnar. Þar er hvítlakkaður skápur frá gólfi upp í loft með rennihurð.
Svefnherbergi I:
Rúmgott og bjart herbergi með skáp á einum vegg. Franskur gluggi gefur herberginu sérstakan sjarma.
Svefnherbergi II:
Bjart herbergi með parketi á gólfi.
Svefnherbergi III:
Bjart herbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi:
Nýlega endurnýjað baðherbergi með walk-in sturtu, upphengdu salerni, innréttingu með skúffu og handlaug ásamt speglaskáp á vegg. Flísar á gólfi og gólfhiti.
Svalir:
Sérsvalir með aðgengi frá sameign og fallegu útsýni að Hallgrímskirkju.
Sérgeymsla:
Sérgeymsla í kjallara er utan skráðra 99 m² eignarinnar og staðsett gegnt þvottaaðstöðu. Einnig fylgir eigninni geymslurými undir stiga í sameign.
Þvottahús:
Sameiginlegt þvottahús í innangengum kjallara.
Garður:
Aðgangur er að sameiginlegum garði við húsið.
Gólfhiti og hitakerfi
Gólfhiti er í öllum helstu rýmum íbúðarinnar. Svefnherbergin eru með hefðbundnum ofnum.
Framkvæmdir síðustu ára
2026: Eldhúsinnrétting máluð í hlýjum ólífugrænum tón og opnum hillum komið fyrir við eldunarsvæði.
2024: Bakaraofn og helluborð endurnýjuð.
2021: Eldhús endurnýjað. Innrétting stækkuð, ný viðarborðplata sett, hitaveituofn fjarlægður og gólfhiti lagður ásamt nýjum flísum.
2021: Baðherbergi endurnýjað með nýrri innréttingu, sturtu, salerni og vaski. Gólfhiti lagður og flísar endurnýjaðar.
2021: Ofnar fjarlægðir úr öðrum rýmum en svefnherbergjum og gólfhiti lagður ásamt nýju gólfefni.
2020: Skipt um gler í svefnherbergjum og baðherbergi. Harðparket lagt á svefnherbergi.
Húsið hefur einnig verið viðgert og málað að utan á síðustu árum. Stigagangur hefur verið endurnýjaður, teppalagður og málaður, auk þess sem svalir og svalahurðir hafa verið málaðar.

Staðsetning
Þórsgata 25 er einstaklega vel staðsett efst í Þingholtunum, á rólegum stað en þó í örstuttu göngufæri við allt það helsta sem miðborg Reykjavíkur hefur upp á að bjóða.
Listasafn Einars Jónssonar og höggmyndagarðurinn eru rétt við húsið og mynda fallegt grænt svæði í næsta nágrenni. Grænaborg leikskóli, Austurbæjarskóli, Sundhöll Reykjavíkur og Landspítalinn eru einnig

í næsta nágrenni.
Örstutt er á Óðinstorg, í verslanir, kaffihús, veitingastaði, listasöfn og aðra þjónustu miðborgarinnar. Tjörnin og Hljómskálagarðurinn eru einnig í stuttri göngufjarlægð.

Samantekt
Um er að ræða einstaklega bjarta, hlýlega og vel skipulagða 99 m² fjölskylduíbúð með þremur svefnherbergjum, rúmgóðum stofum, fallegum eldri sérsmíðuðum innréttingum, sameiginlegum garði og góðu útsýni, á einum eftirsóttasta stað miðborgarinnar.
Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð á síðustu árum og sameinar á fallegan hátt karakter eldri byggðar og nútímaleg þægindi.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 822 2123 eða á helga@fastlind.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
26/09/202576.300.000 kr.89.000.000 kr.99 m2898.989 kr.
17/03/202152.150.000 kr.59.000.000 kr.99 m2595.959 kr.
02/01/201225.150.000 kr.27.500.000 kr.99 m2277.777 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (49)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dalsbraut 24
Efsta hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Dalsbraut 24
Dalsbraut 24
260 Reykjanesbær
108.2 m2
Fjölbýlishús
413
646 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Forsalir 1
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Forsalir 1
Forsalir 1
201 Kópavogur
92.2 m2
Fjölbýlishús
312
856 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Gullengi 17
Opið hús:19. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Gullengi 17
Gullengi 17
112 Reykjavík
108.5 m2
Fjölbýlishús
312
736 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Grásteinsmýri 3 - íbúð 301 NÝTT INN
Efsta hæð
Opið hús:17. sept. kl 17:30-18:00
Grásteinsmýri 3 - íbúð 301 NÝTT INN
225 Garðabær
105.8 m2
Fjölbýlishús
413
888 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin