Fasteignaleitin
Skráð 19. júní 2026

Drápuhlíð 21

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
76.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
62.900.000 kr.
Fermetraverð
822.222 kr./m2
Brunabótamat
35.700.000 kr.
Byggt 1950
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
20302548
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

LANDMARK Fasteignamiðlun og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:
Björt og falleg 2-3ja herbergja íbúð með sérinngangi í kjallara í eftirsóttu hverfi við Drápuhlíð 21 í Reykjavík.  Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu, mjög rúmgott svefnherbergi, baðherbergi, rúmgott hol sem nýtist sem sjónvarpshol og sérgeymsla og þvottahús í sameign.
**SÉRINNGANGUR **BÚIÐ AÐ DRENA OG ENDURNÝJA FRÁRENNSLISLAGNIR  **BÚIÐ AÐ ENDURNÝJA RAFMAGNSTÖLFU Í SAMEIGN
Falleg og vel skipulögð eign á eftirsóttum og barnvænum stað í Hlíðunum.  Stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir, leik- og grunnskóla. 


Eignin er skráð 76,5 fm skv HMS og skiptist í íbúð 74,5 fm og geymslu 2 fm.

Nánari lýsing eignar:
Forstofa með fallegum flísum á gólfi, innangengt úr forstofu í sameign.
Stofu/borðstofu hefur verið skipt upp í tvennt með léttum vegg til að útbúa aukaherbergi, ekkert mál að taka hann niður aftur, parket á gólfi og stór gluggi.
Eldhús er rúmgott og bjart með eldri innréttingu sem búið er að lakka, endurnýjaðri borðplötu og blöndunartækjum, flísar á milli efri og neðri skápa og tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi er mjög rúmgott með fataskápum og parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með fallegri hvítri innréttingu með góðum speglaskáp og baðkar með sturtugleri.
Hol tengir saman rými íbúðarinnar, rúmgott og er nýtt sem sjónvarpshol í dag, parket á gólfi.
Sérgeymsla íbúðar er í sameign, að hluta til undir stiga.
Þvottahús er í sameign, mjög rúmgott.

Skv upplýsingum frá húsfélagi þá er búið er að drena kringum húsið og endurnýja frárennslislagnir undir húsi og taka þær beint út út húsi og leggja þær meðfram húsinu og út í brunn. Einnig er búið að múrviðgera húsið og endurnýja rafmagnstöflu í sameign.

Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@landmark.is

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Snæland 2
Hleðslustöð
Skoða eignina Snæland 2
Snæland 2
108 Reykjavík
98 m2
Fjölbýlishús
413
877 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Haukahlíð 2
Skoða eignina Haukahlíð 2
Haukahlíð 2
102 Reykjavík
78.9 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Haukahlíð 2 - íbúð 320
Haukahlíð 2 - íbúð 320
102 Reykjavík
78.9 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 12
Bílastæði
Skoða eignina Valshlíð 12
Valshlíð 12
102 Reykjavík
78 m2
Fjölbýlishús
211
1024 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin