Fasteignaleitin
Skráð 8. apríl 2026

Þorraholt 19b 403

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
354.4 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
195.000.000 kr.
Fermetraverð
550.226 kr./m2
Fasteignamat
12.750.000 kr.
Mynd af Jason Kristinn Ólafsson
Jason Kristinn Ólafsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2539659
Landnúmer
234802
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
4
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Lóð
4,01
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Jason Kristinn Ólafsson sími 7751515  - jason@betristofan.is  og Betri Stofan fasteignasala kynna: Þorraholt 19b í Hnoðraholti, 210 Garðabæ. Glæsileg penthouse íbúð, alls 177,2 fm íbúð við Þorraholt 19b í 7 íbúða fjölbýli.

Lyftan opnast beint inní íbúð.

Eigninni fylgir bílastæði í bílakjallara, 30,4 fm og 10,4 fm sérgeymslur, 2 baðherbergi, þvottahús, 3 svefnherbergi, fataherbergi. stofu, eldhúsi með steinborðplötu, þvottaherbergi og 36,7 fm þaksvölum til vesturs. Svalalokun yfir hluta sem er 9 fm að stærð. Sér bílastæði merkt: B06 í lokuðum bílakjallara.
Glæsilegt útsýni. 

NÁNAR UM VERKEFNIÐ: www.thorraholtid.is 

Þorraholt 19b íbúð á efstu hæð merkt 403: Glæsileg 177,2fermetra íbúð á efstu hæð með 36,7 fm þaksvölum til suðurs og merktu bílastæði í bílakjallara. 2 sérgeymslur fylgir íbúðinni. Afhending er í maí 2026 með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið. Sér þvottahús er innan íbúðar.

Glæsilegar íbúðir við Þorraholt 19b í Garðabæ. Um er að ræða fjölbreyttar 3ja og 4ra herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði í bílakjallara íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt ca. 35 fm séreignageymslum á jarðhæð. Sameiginlegur bílakjallari með Þorraholti 17.
Húsið stendur á útsýnisstað.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir og klæddir að utan sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Þorraholt stendur á einstökum stað í Garðabæ – í grónu og friðsælu umhverfi þar sem náttúra og þægindi borgarlífs fara saman. Hér eru fjölbreytt útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir rétt við heimilið, auk þess sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Garðabær er þekktur fyrir öflugt samfélag, góðar samgöngur og fjölbreytt tækifæri til íþrótta, menningar og útivistar – allt sem þarf fyrir virkt og innihaldsríkt daglegt líf.

Svæðið í kringum Þorraholt býður upp á jafnvægi milli rólegrar náttúru og nálægðar við líflega miðju höfuðborgarsvæðisins. Hér getur þú notið kyrrðarinnar heima fyrir og verið samt aðeins örfáum mínútum frá vinnu, verslun og afþreyingu. Það gerir Þorraholt að kjörnum stað fyrir þá sem vilja bæði lífsgæði og þægindi í senn.

ÞG Verk hafa yfir 28 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

Ef misræmi er á milli eignaskiptasamnings, söluyfirlits og/eða sölusíðu þá gilda þær upplýsingar sem koma fyrir í eignaskiptasamningi og samþykktum teikningum. 

Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru Nobilia innréttingar frá GKS. Steinn er á borðplötum. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á aðalbaðherbergjum.  Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Siemens. Íbúðum er skilað með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við. Hreinlætistæki: Salernisskál (Laufen) er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru hitastýrð frá Damixa. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins. Þar sem enn er verið að klára þinglýsingu á eignaskiptasamningi þá eru fastanúmer ekki rétt og verða leiðrétt fyrir kaupsamning um eignina.

Eignin afhendist skv skilalýsingu. 

Allar nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali hjá Betri Stofunni.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2026
177.2 m2
Fasteignanúmer
2539659
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
12.750.000 kr.
Fasteignamat samtals
12.750.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2026
Fasteignanúmer
2539659
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
6
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Gæfutjörn 2
Bílastæði
Opið hús:13. apríl kl 18:00-18:30
Skoða eignina Gæfutjörn 2
Gæfutjörn 2
113 Reykjavík
85.9 m2
Fjölbýlishús
312
872 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 8B íb. 203
Bílastæði
Opið hús:09. apríl kl 17:00-17:30
Apalskarð 8B íb. 203
221 Hafnarfjörður
93.4 m2
Fjölbýlishús
43
803 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 8B íb. 102
Bílastæði
Opið hús:09. apríl kl 17:00-17:30
Apalskarð 8B íb. 102
221 Hafnarfjörður
96.6 m2
Fjölbýlishús
43
776 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 8 íb. 302
Opið hús:09. apríl kl 17:00-17:30
Apalskarð 8 íb. 302
221 Hafnarfjörður
80.3 m2
Fjölbýlishús
312
833 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin