Glæsileg 110,6 fm 4. herb. endaíbúð á 2. hæð, lyfta, einkastæði í bílageymslu. Stórar 22,3 fm suðursvalir með leyfi fyrir svalalokun. Gluggar í 3 áttir.
Daggarvellir 4B: Gengið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. Stofa og opið eldhús liggja saman í björtu alrými. Útgengt á stórar 22,3 fm svalir sem snúa í suður og austur, og leyfi er til staðar fyrir svalalokun. Eldhúsið er bjart með hvítri innréttingu, miklu skápaplássi, góðum tækjum, stóru helluborði, og ofni í vinnuhæð. Stórt hjónaherbergi með stórum fataskáp. 2 rúmgóð barnaherbergi. Baðherbergi með góðri innréttingu, baðkari og sturtuaðstöðu. Þvottahús er innangengt af baðherbergi. Flísar á gólfi í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi, en viðarparket á stofu og herbergjum. Íbúðin er endaíbúð á 2. hæð. Góð lyfta í sameign. Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir eigninni. Búið er að leggja rafmagnskapal að stæðinu fyrir hleðslustöð. Geymsla 7.7 fm fylgir íbúðinni. Hjóa- og vagnageymsla í sameign. Uppsett þjófavarnarkerfi frá Öryggismiðstöðinni. Danalock smartlæsing. Íbúðin er laus við kaupsamning. Vel staðsett eign í Vallarhverfinu. Stutt í þjónustu, skóla, leikskóla, leikvöll, sund, íþróttir, og almenningssamgöngur. Fasteignamat 2023 kr. 63.550.000.
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir varðandi eignina á info@titaya.com eða hringið í síma 775-3993.
Þessi eign er í beinni sölu, þ.e. án milligönguaðila. Titaya ehf. er fasteignafélag og selur eingöngu eigin eignir.
Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.isDagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
21/03/2022 | 50.300.000 kr. | 62.250.000 kr. | 110.6 m2 | 562.839 kr. | Já |
09/10/2019 | 40.600.000 kr. | 42.500.000 kr. | 110.6 m2 | 384.267 kr. | Já |
27/01/2014 | 24.800.000 kr. | 23.500.000 kr. | 110.6 m2 | 212.477 kr. | Nei |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
221 | 113.9 | 72,9 | ||
221 | 110.9 | 76,4 | ||
221 | 111.4 | 76,4 | ||
221 | 97.6 | 73 | ||
221 | 108.6 | 74,9 |