Fasteignaleitin
Skráð 17. nóv. 2026

Hrísmóar 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
115.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
736.979 kr./m2
Fasteignamat
79.600.000 kr.
Brunabótamat
64.650.000 kr.
Mynd af Dagbjartur Willardsson
Dagbjartur Willardsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1986
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2070751
Landnúmer
118834
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Í vestur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna, Hrísmóa 5, Garðabæ, íbúð 0302, fnr. 207-0751. - Íbúð á tveimur hæðum. 

Íbúðin er skráð hjá þjóðskrá 115,2 fm og er íbúðarhluti 107,4 fm og geymsla 7,8 fm. Húsið er byggt árið 1986. Eignin er  falleg og mikið endurnýjuð 3ja-4ra herbergja íbúð á tveimur hæðum með suðvestur svölum.  Íbúðin er stærri að gólffleti þar sem hluti efri hæðar hennar mælist ekki þar sem hann er undir súð. Búið er að endurnýja eldhúsinnréttingu og öll tæki í eldhúsi. Skipt var um alla ofna í íbúðinni árið 2018. Nýr vaskur, innrétting og blöndunartæki á baðherbergi. LED lýsing í allri íbúð og hreyfiskynjarar í forstofu og baðherbergi. Búið er að tengja inn ljósleiðara. Á neðri hæð íbúðarinnar eru forstofa, eldhús, stofa, baðherbergi og hjónaherbergi en á efri hæð eru sjónvarpsstofa og barnaherbergi. Mjög mikil lofthæð er í stofu og eldhúsi og fallegt útsýni er frá íbúðinni og af svölum. 

3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR -  3D

FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.

Nánari lýsing:

Neðri hæð: 
Aðkoma: Snyrtileg sameign upp að íbúðinni sem er á efstu hæð hússins. Malbikuð bílastæði við húsið. 

Forstofa: Parket á gólfi. Fataslá. 

Stofa:  Parket á gólfi. Mikil lofthæð og fallegt útsýni. 

Eldhús: Er opið við stofuna. Svört innrétting. Helluborð og bakstursofn frá Siemens. Innbyggð uppþvottavél. Parket á gólfi. 

Hjónaherbergi: Parket á gólfi. Útgengt á svalir sem snúa til suð/vesturs. 

Baðherbergi:  Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtutæki og glerþili. Innrétting með handlaug og neðri skápum. Spegill með lýsingu. Við inngang í baðherbergi er góður fataskápur og þar í enda skápsins er rými fyrir þvottavél og þurrkara. 

Efri hæð: 
Sjónvarpsrými: Rúmgott svæði með parketi á gólfi. 

Barnaherbergi: Er einn af sjónvarpsrými og er parket á gólfi. Hægt væri að útbúa tvö minni herbergi í stað þessa stóra herbergis. 


Geymsla: Læst geymsla á jarðhæð og er hún 7,8 fermetrar með glugga og hillum. Á jarðhæð er einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla sem og sameiginlegt þvotta og þurrkherbergi. 

Hrísmóar 5 er einstaklega falleg íbúð. Staðsetning eignarinnar er afar góð mjög miðsvæðis í Garðabæ þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði Stjörnunnar, verslanir og alla aðra þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s: 861-7507 eða á daddi@remax.is

Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. 

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
07/10/202044.450.000 kr.52.500.000 kr.113 m2464.601 kr.Já
29/08/201734.150.000 kr.36.500.000 kr.113 m2323.008 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grásteinsmýri 3 - íbúð 203
Opið hús:18. nóv. kl 17:00-17:30
Grásteinsmýri 3 - íbúð 203
225 Garðabær
120,4 m2
Fjölbýlishús
413
846 þ.kr./m2
101.900.000 kr.
Skoða eignina Grásteinsmýri 3 - íbúð 202
Opið hús:18. nóv. kl 17:00-17:30
Grásteinsmýri 3 - íbúð 202
225 Garðabær
96,9 m2
Fjölbýlishús
312
876 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Grásteinsmýri 1 - íbúð 105
Bílastæði
Opið hús:18. nóv. kl 17:00-17:30
Grásteinsmýri 1 - íbúð 105
225 Garðabær
121,7 m2
Fjölbýlishús
413
903 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Lyngmóar 16
Bílskúr
Efsta hæð
Skoða eignina Lyngmóar 16
Lyngmóar 16
210 Garðabær
113,8 m2
Fjölbýlishús
413
658 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin