Fasteignaleitin
Skráð 31. júlí 2023

SPÁNAREIGNIR - Flamenca Village

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
119 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
75.600.000 kr.
Fermetraverð
635.294 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
103300724
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Góðar svalir og möguleiki á þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLAMENCA VILLAGE, EIN BESTA STAÐSETNINGIN Á COSTA BLANCA" 
"DÁSAMLEGT ÞORP VIÐ MIÐJARÐARHAFIÐ"

Lokað svæði, gróið og fallegt umhverfi, göngustígar, hlaupabrautir, sundlaugar, barnalaugar, líkamsræktraraðstaða, kaffihús/bar og ótal margt fleira sem gerir þetta án efa að flottasta íbúðahverfinu á Costa Blanca svæðinu.

Glænýjar og vandaðar  4ra herb. íbúðir á frábærum stað á Playa Flamenca, stutt frá Villamartin, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 10 mín göngufæri á Playa Flamenca ströndina,  10 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, flottu verslunarmiðstöðina og aðeins 5 mín. rölt á vinsæla laugardagsmarkaðinn í Playa Flamenca. Mercadona og úrval fleiri verslana og veitingastaða örstutt frá. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð á fínu verði í frábæru umhverfi. 

Aðeins örfáar íbúðir eftir.
TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.

Upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 00354 893 2495, 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869 

Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 00354 777 4277.

Nánari lýsing:
Um er að ræða nýbyggð lyftuhús með 3ja og 4ra herb. vel hönnuðum íbúðum. Íbúðirnar eru  með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, góðri stofu/alrými og fallegu eldhúsi. Þvottahús og geymsla innan íbúðar. Aðeins tvær íbúðir eftir, báðar á jarðhæð með sér garði. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Glæsileg sameign með sundlaug, heitum pottum og líkamsræktaraðstöðu, kaffihúsi/bar ofl.  Góð leikaðstaða fyrir börnin. Frábært útsýni m.a. til sjávar.

Stæði í bílakjallara.
Einnig fylgir geymsla í kjallara flestum íbúðunum.

Falleg hvít  sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í örstuttu göngufæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.

Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri, t.d. La Zenia, Playa Flamenca og La Zenia Boulevard, vinsælustu verslunarmiðstöðina á svæðinu, veitingastaðir og fjölbreyttrar afþreyingar. Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á þessum vinsæla stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega.

Mögulegt er að fá íbúðina afhenta fullbúna húsgögnum og húsbúnaði gegn aukagjaldi. Þá er allt sett upp og hægt að flytja beint inn og byrja að njóta frá fyrsta degi.

Verð miðað við gengi 1Evra=145 ISK
4ra herbergja íbúð (þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi): frá 522.000 Evrum (ISK. 75.600.000) + kostn. við kaupin.

Allar íbúðir í Flamenca Village eru til búnar til afhendingar við kaupsamning.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við aðstoðum okkar viðskiptavini við greiðslumatið.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: bílakjallari, sundlaugargarður, air con, sér garður, þakverönd, nálægt strönd, lyfta, 
Svæði: Costa Blanca, Playa Flamenca,
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
103300724
Fasteignanúmer
103300724

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Gerplustræti 37
Opið hús:20. maí kl 17:00-18:00
Skoða eignina Gerplustræti 37
Gerplustræti 37
270 Mosfellsbær
64.4 m2
Fjölbýlishús
211
1023 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D2 705
Opið hús:16. maí kl 12:00-13:00
Orkureiturinn D2 705
108 Reykjavík
226.5 m2
Fjölbýlishús
432
1400 þ.kr./m2
317.200.000 kr.
Skoða eignina Kjarnagata 65 íbúð 204
Kjarnagata 65 íbúð 204
600 Akureyri
87.5 m2
Fjölbýlishús
413
817 þ.kr./m2
71.500.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D1 601
Opið hús:16. maí kl 12:00-13:00
Orkureiturinn D1 601
108 Reykjavík
120.3 m2
Fjölbýlishús
312
1245 þ.kr./m2
149.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin