Fasteignaleitin
Skráð 21. apríl 2026

Línakur 1 C (206)

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
160.7 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
132.000.000 kr.
Fermetraverð
821.406 kr./m2
Fasteignamat
115.600.000 kr.
Brunabótamat
85.350.000 kr.
Byggt 2007
2. hæð af 3
Garður
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
2284309
Landnúmer
202931
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
06
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðursvalir
Lóð
6,50
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Háborg og Þórunn Pálsdóttir lgf kynna með stolti sérlega rúmgóða og glæsilega 5 herbergja útsýnisíbúð í Akrahverfinu í Garðabæ. Fjögur rúmgóð svefnherbergi.  Íbúðin er 151,9 fm og geymsla er 8,8 fm, samtals 160,7 fm.
Sérinngangur, fjögur góð svefnherbergi, tvö baðherbergi, stór falleg stofa og góðar suðursvalir.  Glæsilegt útsýni yfir Garðabæinn, að Snæfellsjökli og víðar.  Björt endaíbúð með gluggum á þrjá vegu.
Fallegt álklætt hús frá árinu 2007, snilldarlega hannað af Ingimundi Sveinssyni.  Frábær staðsetning  stutt frá verslun og þjónustu, leikskóla, grunnskóla og fjölbrautaskóla. Íþróttasvæði og sundlaug í næsta nágrenni. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og thorunn@haborg.is



Skipulagið er frábært, en komið er í forstofu með flísum á gólfi og skápum sem ná upp í loft. Gluggi til norðurs.
Næst er stórt alrými samanstendur af stofu og  rúmgóðu eldhúsi inn af.  Útgengi á 8,7 fm svalir til suðurs.
Eldhúsið er með flísum á gólfi og fallegri eikar eldhúsinnréttingu og með granít í borðplötum.. Glæsilegt útsýni til vesturs og suðurs
Stofan er  stór með parketi á gólfi og gluggum til suðurs. Glæsilegt útsýni til suðurs, m.a. að Keili.
Á vinstri hönd þegar komið er úr forstofu er rúmgott 9,9 fm herbergi með skápum og glugga til norðurs.  Við hliðina á því er flísalagt þvottahús með vinnuborði og tengi þvottavél og þurrkara.  Næst er rúmgott baðherbergi með góðri snyrtiaðstöðu og baðkeri. Innst er 15,2 fm mjög rúmgott hjónaherbergi með skápum að lofti og glugga til suðurs.
Á hægri hönd þegar komið er úr anddyrinu er þriðja svefnherbergið sem er 10 fm með skápum og glugga til norðurs og  þar við hliðina fjórða svefnherbergið, örlítið stærra eða 10,4 fm einnig með skáp og glugga til norðurs.
Við hliðina á því er baðherbergi tvö með sturtu og opnanlegum glugga.

Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð hússins. 
Sér geymsla íbúðarinnar er 8,8 fm og staðsett á jarðhæð hússins.

Frábærlega skipulögð og rúmgóð fimm herbergja íbúð  þessu vinsæla hverfi í Garðabæ. Stutt er í alla verslun og þjónustu, leikskóla, grunnskóla og fjölbrautaskóla. Íþróttasvæði og sundlaug í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar: Þórunn Pálsdóttir  lögg. fasteignasali og verkfræðingur / thorunn@haborg.is / 773-6000
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
20/05/2016104.250.000 kr.57.000.000 kr.160.7 m2354.698 kr.
11/01/201335.200.000 kr.39.500.000 kr.160.7 m2245.799 kr.
30/06/201036.600.000 kr.34.000.000 kr.160.7 m2211.574 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Háborg fasteignasala ehf
https://www.haborg.is

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langalína 2
Bílastæði
Opið hús:20. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Langalína 2
Langalína 2
210 Garðabær
156.8 m2
Fjölbýlishús
413
746 þ.kr./m2
116.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarbyggð 35
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:21. júlí kl 17:00-17:30
Hlíðarbyggð 35
210 Garðabær
194 m2
Raðhús
624
915 þ.kr./m2
177.500.000 kr.
Skoða eignina Leynisbraut 14
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Leynisbraut 14
Leynisbraut 14
300 Akranes
146.4 m2
Raðhús
312
676 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 15
Heitur pottur
IMG_6328.JPG
Skoða eignina Dugguvogur 15
Dugguvogur 15
104 Reykjavík
165.1 m2
Fjölbýlishús
422
878 þ.kr./m2
145.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin